Kjúklingabitar með Doritos – Uppskrift

Krökkunum finnst þetta alveg æði!

Kjúklingabitar með flögum 

Fyrir  4

Efni:

  • 500 gr. kjúklingabringur frá Ísfugl
  • 1 bolli osta Doritos flögur (Cheese Doritos)
  • sósa, t.d. Ranch sósa

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180˚ C,  setjið bökunarpappír á  plötu
  2. skerið bringurnar í bita í þeirri stærð sem þið óskið
  3. setjið flögurnar í plastpoka, látið nokkra kjúklingabita í pokann í einu og hristið
  4. látið bitana á plötuna
  5. bakið nú í u.þ.b. 25 mín. eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og flögurnar stökkar
  6. berið fram með kjúklingabitunum þá sósu sem þið viljið helst og dýfið þeim í sósuna!
SHARE