Kókosbúðingur – Góður eftirréttur

Þessi frábæri eftirréttur er eiginlega sambland af búðingi með kókosmjöli og haframéls-smákökum! Fljótlegt og gómsætt.

 

Efni:

  • 200 gr stökkar haframélskökur
  • 1/4 bolli ristað kókosmjöl
  • 5 msk. bráðið smjör
  • 2 msk. púðursykur
  • 2 box vanillubúðingur
  • 2 bollar köld mjólk
  • 2 bollar þeyttur rjómi
  • 1 bolli kókosmjöl

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 190˚C.
  2. Setjið haframjölskökurnar og ristaða kókosmjölið í matvinnsluvél og látið hana mala það.
  3. Hellið mulningnum í skál, hellið smjörinu út í ásamt púðursykrinum og blandið. Þrýstið þessu svo í kringlótt form (ca. 22 cm í þvermál).
  4. Bakið í ca. 10 mín. Kælið.
  5. Látið búðingsduftið í stóra skál, hellið mjólkinni út í og þeytið þar til búðingurinn fer að þykkna. Þá er þeyttum rjómanum blandað saman við og að lokum kókosmjölinu.
  6. Hellið búðingnum í (formið) skelina (sem nú er orðin köld) og latið standa í kæliskáp a..m.k. 4 klst.
  7. Skreytið með þeyttum rjóma og kókosmjöli.

ATH!

Þið getið líka notað niðursuðukrukkur, bakað mulninginn (skelina) í þeim, sett búðinginn í krukkurnar, skellt þeim í kæliboxið og tekið eftirmatinn með í helgarferðina. Svona eftirréttur kæmi fjölskyldunni á ferðalagi skemmtilega á óvart! 

 

SHARE