Konur í stærri stærðum mega líka vera í bikini

Hin 22 ára gamla Loey Lane hefur ákveðið að láta í sér heyra varðandi umræðu um að stærri stelpur eiga ekki að láta sjá sig í bíkiní. Hún segir að þær stelpur sem eru í stærri stærðum séu ekki að biðja um álit almennings um það hvort þær ættu að leyfa sér að vera í bíkiní yfir höfuð.

Loey talar um tísku í yfirstærðum og almenna fegurð, bæði á YouTube og Instagram með miklu fylgi og segist hún vilja koma þessu málefni almennilega á framfæri. Henni hefur verið sagt að bíkini klæði alls ekki stórar stelpur, en hún segist þurfa að vera mjög ósammála þeim yfirlýsingum. Henni finnst ekki réttlætanlegt að grannar konur megi klæðast hverju sem er án þess að vera gagnrýndar fyrir það og um leið eru þær stærri sagðar valda öðrum óþægindum með því að klæðast því sem þær vilja. Loey segir að henni þykir leitt að fólk eyði tíma sínum í að einblína á allt það neikvæða í fari sínu og annarra og að fólk ætti að endurskoða hvernig það hugsar um líkamsímyndir.

2A02C00100000578-0-image-m-38_1435351717497

Loey segir að margir hafa verið með leiðindi á reikningum hennar á YouTube og Instagram

sund 1

sund2

Sjá einnig: Tískubloggarar í yfirstærð sem eru slá í gegn

sund3 sund4

Virkilega sæt stelpa: Hún hefur áhuga á tísku fyrir stelpur í stærri stærðum.

sund6

Loey ásamt eiginmanni sínum

sund7

Sjá einnig: Konur í stærri stærðum panta föt á netinu

Sund8

Vekur athygli á því að það eru allir jafnir, sama hvaða stærð við erum í

Heimildir: Dailymail

SHARE