Kylie Jenner rekur Kris Jenner

Kylie Jenner er byrjuð aftur með Tyga eftir enn ein sambandsslitin. Hún hefur núna tekið aðra afdrifaríka ákvörðun um að reka móður sína, Kris Jenner, sem umboðsmann sinn.

Heimildarmaður RadarOnline segir:

„Kris hefur verið svo upptekin af óléttu Blac Chyna, fyrirsætuferli Kendall og eins og alltaf Kim. Kylie líður eins og hún skipti mömmu sína ekki máli lengur og þess vegna vill hún fá sér annan umboðsmann. Dramað milli mæðgnanna hófst þegar Kris skrifaði undir samning fyrir Rob og Blac um nýjan þátt sem verður tileinkaður þeim tveimur, en Tyga er barnsfaðir Blac Chyna. Kylie hefur verið að grátbiðja mömmu sína um að fá sinn eigin þátt, árum saman og þetta atvik var eins og blaut tuska í andlitið á henni.“

 

 

 

SHARE