Leghálsskoðun

Einföld en mikilvæg rannsókn

Leghálsskoðun er einföld rannsókn en mjög mikivæg sem heilsuvernd. Því vill Leitarstöð Krabbameinsfélagsins minna þig á að koma reglulega til leghálsskoðunar.

Hver er tilgangurinn með leghálsskoðun?

Í leghálsslímhúðinni eru frumur sem geta breyst og þróast yfir í krabbamein. Þessar frumubreytingar eru almennt kallaðar forstigsbreytingar og er unnt að greina þær með frumustroki frá leghálsi. Ef breytingar verða er hægt að grípa inn í þá þróun með minni háttar aðgerð og koma þannig í veg fyrir að krabbamein nái að myndast.

Hvað veldur frumubreytingum í leghálsi?

Algengustu orsakir eru sýkingar af völdum HPV- veira (Human Papilloma virus) sem smitast við samfarir. Mest er áhættan hjá stúlkum, sem byrja mjög ungar að lifa kynlífi, hafa marga rekkjunauta og/eða reykja. Aukin áhætta fylgir frjálsræði beggja kynja í kynlífi. Fleiri þættir virðast þó jafnframt geta haft áhrif svo sem aðrar sýkingar í kynfærum.

Hvernig fer leghálsskoðun fram?

Megintilgangur leghálsskoðunar er að fá frumustrok. Læknirinn notar lítinn tréspaða og bursta til að taka frumusýni frá yfirborði leghálsins. Sýnið er sett á smásjárgler sem er litað og síðan skoðað í smásjá á frumurannsóknarstofu. Að jafnaði tekur um þrjár vikur að fá niðurstöðu úr frumustrokinu. Langflest sýni eru eðlileg. Athugið að leghálsstrok á ekki að taka meðan á blæðingum stendur.

Sjá einnig: Valda veirur leghálskrabbameini?

Hvað svo?

Ef sýnið þitt reynist eðlilegt ertu samt sem áður hvött til að koma reglulega í skoðun. Finnist afbrigðilegar frumur í sýninu þínu er þér sent bréf með niðurstöðum og ráðleggingum um framhald. Þér verður þá annað hvort fylgt eftir með þéttari skoðunum í ákveðinn tíma eða ráðlagt að fara í leghálsspeglun til nákvæmari greiningar. Frumubreytingar eru ekki krabbamein en krefjast alltaf nánari athugunar og eftirlits.

Hvaða konur þurfa að koma í leghálsskoðun?

Þar sem krabbamein geta þróast á löngum tíma óháð aldri er mælt með að allar konur sem byrjað hafa kynlíf komi reglulega, á tveggja til þriggja ára fresti, í skoðun eftir tvítugt.

Hvert er hægt að fara í leghálsskoðun?

  • Á Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands í Reykjavík
  • Á heilsugæslustöðvar
  • Á stofu til sérfræðings í kvensjúkdómum
  • Til heimilislækna

Vilt þú vita meira?

Ef þú vilt fræðast meira um leghálsskoðun og leghálskrabbamein skaltu leita upplýsinga hjá lækni eða Leitarstöð Krabbameinsfélagsins í síma 540 1919. Fræðslurit Krabbameinsfélagsins liggja frammi hjá félaginu, á flestum heilsugæslustöðvum, í apótekum og víðar. Vefslóð félagsins er www.krabb.is.

Heilsuboðorð fyrir konur

Hver og ein kona getur gert ýmislegt til þess að draga úr líkum þess að fá krabbamein

  • Reyktu ekki og forðastu reyk frá öðrum. Notum ekki munn- og neftóbak
  • Hreyfum okkur að minnsta kosti í  hálfa klukkustund á dag.
  • Borðum hollan og fjölbreyttan mat. Neytum grænmetis og ávaxta daglega.
  • Forðumst að vera of þungar.
  • Takmörkum neyslu áfengra drykkja.
  • Vörumst ljósabekki og óhófleg sólböð.
  • Öflum okkur upplýsinga um helstu einkenni krabbameina og bregðumst við þeim.
  • Forðumst langtímanotkun tíðahvarfahormóna. Verum vakandi fyrir krabbameinsvaldandi efnum í umhverfinu.
  • Þiggjum boð um að mæta reglulega í leghálsskoðun eftir tvítugt. Verjumst HPV-veirusmiti með því að stunda öruggt kynlíf.
  • Skoðum brjóstin mánaðarlega og þiggjum boð um að mæta reglulega í brjóstamyndatöku eftir fertugt.

Grein þessi en fengin úr bæklingnum leghálsskoðun og er gefinn út af Krabbameinsfélaginu

 

 

Fleiri greinar má finna á doktor.is logo

SHARE