Létt og laggott kjúklingasalat

Þessi uppskrift er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Þetta salat er alveg ótrúlega ljúffengt og létt í maga. Svo er auðvitað alveg tilvalið að nýta afganginn í nesti daginn eftir.

Sjá einnig: Syndsamlega ljúffengt satay-kjúklingasalat

IMG_2150

Létt og laggott kjúklingasalat

1 pakki salatblanda

1 rauð paprika

1 agúrka

1/2 – 1 pakki furuhnetur
1 krukka fetaostur

3 kjúklingabringur

salt

hvítur pipar

hvítlauksduft

1 krukka grænt pestó

Sjá einnig: Kjúklingasalat með ljúfri hunangssósu – Uppskrift

  • Rífið salatblöð í skál. Skerið papriku og agúrku smátt og blandið saman við salatblöðin.
  • Þurristið furuhnetur á pönnu og sáldrið yfir salatið ásamt fetaosti án olíunnar.
  • Kryddið kjúklingabringur með salti, pipar og hvítlauksdufti. Hafið í huga að pestóið er mjög salt svo það dugar að setja örlítið salt öðru megin á kjúklingabringurnar.
  • Steikið kjúklingabringur í ofni við 180° í um 40 mínútur.
  • Skerið bringurnar í hæfilega stóra bita og setjið í skál.
  • Hrærið grænu pestó saman við kjúklingabringubitana og blandið saman við salatið.

Einfalt, fljótlegt og ljómandi gott!

 

SHARE