Lífið er gjöf – lifðu því, njóttu þess, fagnaðu því!

Ég sá eftirfarandi texta hjá vini mínum á facebook og fannst vel við hæfi að deila honum áfram.
Við eyðum allt of miklum tíma, orku og tilfinningum í að kvarta og kveina yfir hlutum sem skipta litlu sem engu máli.
Njótum lífsins og verum þakklát fyrir það sem við höfum.

líf1
Áður en þú kvartar yfir lífi þínu í dag – hugsaðu um einhvern sem fór of snemma yfir móðuna miklu.
Áður en þú kvartar yfir börnunum þínum – hugsaðu um þá sem þrá börn en geta ekki eignast þau.
Áður en þú rífst út af óhreinindum eða drasli heima hjá þér – hugsaðu um þá sem hafa hvergi höfði sínu að halla.
Áður en þú kvartar yfir vegalengd sem þú þarft að keyra – hugsaðu um þá sem þurfa að ganga sömu leið.
Áður en þú kvartar yfir vinnunni þinni og hversu þreytt/ur þú sért – hugsaðu um þá atvinnulausu, fötluðu og þá sem vildu óska að þeir hefðu vinnuna sem þú ert í.
Áður en þú kvartar yfir bragðinu á matnum – hugsaðu um þá sem svelta.
Áður en þú kvartar yfir manninum þínum eða konunni – hugsaðu um þá sem gráta af því þeir eru einir.
Áður en þú bendir á einhvern og dæmir hann eða kennir öðrum um – mundu þá að ekkert okkar er óskeikult og við gerum öll mistök.
Þegar daprar og erfiðar hugsanir sækja á þig – reyndu að brosa og þakkaðu fyrir að vera á lífi.
Lífið er gjöf – lifðu því, njóttu þess, fagnaðu því!

líf3

SHARE