Lífrænn morgunverður, hollt og gott – Uppskrift

lífrænt grískt jógúrt og ný, lífræn bláber. 

Fyrir 4 – 6

Grískt  jógúrt fer mjög vel með nýjum ávöxtum. Blandan er hlaðin næringarefnum og þá er líka góð hugmynd að fylla lífrænar pönnukökur með blöndunni.

Efni:
1000gr (1 líter) lífrænt grískt jógúrt

2 matsk lífrænt agave sýróp eða hunang

3 bollar lífræn, fersk ber eða aðrir ávextir

2 matsk lífræn, mulin hörfræ

Aðferð:
Hrærið sýrópinu saman við jógúrtið, setjið í glösin (4eða 6), setjið ber eða ávexti út í og dreifið hörfræinu ofana á- og borðið svo!

 

Vel mætti nota skyr í staðinn fyrir gríska jógúrtið

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here