Lýst eftir tveimur drengjum úr Hafnarfirði

Mynd: Vísir.is
Mynd: Vísir.is

Lýst er eftir Rúnari Orra Lárusyni, 14 ára og Bjarka Degi Anítusyni, 14 ára, báðum úr Hafnarfirði. Rúnar fór frá heimili sínu í Hafnarfirði sl. sunnudag en Bjarki fór frá heimili sínu í Hafnarfirði sl. laugardag.

Rúnar er 160 cm á hæð, grannvaxinn með axlarsítt hár. Hann var klæddur í svartar buxur og hettupeysu og Bjarki er 185 cm á hæð, þrekvaxinn, stuttklipptur. Hann var klæddur í hettupeysu og bláar gallabuxur er hann fór að heimann.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir piltanna eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

SHARE