Marc Anthony er skilinn við eiginkonu sína

Það hefur verið opinberað að Marc Anthony (48) og fyrirsætan Shannon De Lima (28) eru skilin. Þau skilaboð bárust eftir að Marc og Jennifer Lopez kysstust uppi á sviði á latnesku Grammy verðlaunahátíðinni.

Sjá einnig: Jennifer Lopez rifjar upp gamla takta með Marc Anthony

Umboðsmenn J-Lo segja að það sé ekkert að gerast á milli þeirra og að allt sé bara á fagmannlegu nótunum. Marc og Shannon voru aðeins gift í tvö ár, en fólk er mikið að hugsa um hvort eitthvað sé á milli J-Lo og Marc vegna þess að þau hafa verið að eyða miklum tíma saman undanfarið ár.

Jennifer hætti með kærasta sínum Casper Smart í ágúst vegna þess að hann hélt aftur framhjá henni. Eftir það hefur hún eytt miklum tíma með Marc, því þau eru að vinna saman að spænskri plötu.

 

3A7FDFDC00000578-3951186-image-a-3_1479505335645

3A7FFA9100000578-3951186-image-a-29_1479507159244

3A867F8600000578-3951186-image-a-1_1479505315231

3A877A5400000578-3951186-image-a-14_1479505673692

3A87841900000578-3951186-More_oddness_Over_the_summer_he_was_seen_backstage_at_her_All_I_-m-24_1479506213675

3A87851500000578-3951186-image-a-22_1479506149545

SHARE