Marineraður kjúklingur, ótrúlega góður – Uppskrift

Kjúklingurinn svíkur ekki! 

Stundum er vinnudagurinn langur og maður velur fljótlegustu leiðina til að koma kvöldmatnum á borðið. Hefurðu spáð í að marínera kjúklinginn t.d. kvöldið áður en þú ætlar að nota hann? Kjúklingur maríneraður t.d. í Cajún sósu geymist mjög vel í ísskápnum og svo seturðu hann bara á grillið þegar þú ert tilbúin(n) til þess.     

Sinneps marínering
efni:

  • 1/4 bolli Dijon sinnep
  • 2 matsk. nýpressaður sítrónusafi
  • 1-1/2 tsk. Worcestershire sósa
  • 1/2 tsk. tarragon
  • 1/4 tsk. nýmalaður svartur pipar
  • 4 kjúklingabringur

Aðferð :
Blandið öllu efninu saman og hrærið. Smyrjið á bringurnar og setjið þær á disk. Látið standa á borðinu í 15 mín. eða í ísskápnum nokkra klukkutíma (t.d. yfir nótt). Grillið við miðlungshita í u.þ.b. 15 mín. eða þar til safi úr bringunum er glær. Snúið einu sinni.

 

Cajun marínering

efni:

  • 2 tsk. Cajun krydd
  • 1/4 tsk. pipar
  • 1/2 tsk. salt
  • 1/2 tsk. laukduft
  • 1/2 tsk. hvítlauksduft
  • 2 matsk. jurtaolía
  • 4 kjúklingabringur

Aðferð:

Blandið saman kryddi og olíu og smyrjið á bringurnar. Látið þær í poka og geymið í ísskáp í a.m.k. klukkustund. Grillið bringurnar á hvorri hlið í 5-7 mín eða þar til safinn úr þeim er glær.

Kjúklingalundir

Mátulegt fyrir 4.

 

efni:

  • 1 – 1 1/2 pund af kjúklingalundum
  • 1/2 bolli cesar salad sósa
  • 1 matsk. ólívuolía
  • smá hvítlauksduft
  • 1/2 tsk. þurrt baskil
  • 1 meðalstór laukur, fínt saxaður
  • svolítill pipar

Aðferð :
Þurrkið allan vökva af kjúklingnum. Setjið allt efnið í skál, blandið, setjið pappír yfir skálina og geymið í 1-2 klst.  Grillið í 5-8 mín. á hvorri hlið eða þar til vökvinn úr kjötinu er glær og kjötið orðið ljósbrúnt.

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here