Með parketvegg í svefnherberginu

Fjóla Katrín Steinsdóttir sálfræðingur tók svefnherbergið í íbúð sinni í gegn á dögunum. Fyrir var herbergið látlaust en eftir breytingar er það gjörbreytt. Parketlagður veggur fyrir ofan hjónarúmið setur mestan svip á herbergið.

„Svefnherbergið var afskaplega einfalt og látlaust fyrir breytingar og vantaði einhvern karakter í það. Okkur langaði að breyta eitthvað til en okkar fyrsta pæling var í rauninni bara stærra rúm – sem við svo fundum í Betra Bak. En svo þekkjum við snillinginn Arnar Gauta og hann var með fullt af góðum hugmyndum og þannig byrjuðu framkvæmdirnar,“ segir Fjóla Katrín Steinsdóttir sálfræðingur.

Fjóla og maður hennar, Jón Gunnar Geirdal, eigandi Lemon, tóku svefnherbergið sitt í gegn á dögunum. Þau í raun gerbreyttu herberginu með hjálp Arnars Gauta Sverrissonar, hins landskunna fagurkera.

29227_Fjola_Katrin_Steinsdottir-3

Parketlagður veggur vekur sérstaka athygli eftir breytingarnar. Um er að ræða plastparket úr Ikea með fallegum grásprengdum lit. Veggirnir voru svo málaðir í gráum tóni í stíl og fyrir vikið myndast mjög hlýleg stemning í svefnherberginu. Fjóla Katrín er hæstánægð með útkomuna.
„Eins og með flest allt sem Arnar Gauti stingur upp á í slíkum breytingum þá heillast maður strax og hugmyndin um parketlagða vegginn heillaði okkur. Útkoman er æðisleg, herbergið er mun hlýlegra og toppurinn auðvitað þetta himneska rúm,“ segir hún.

Fjóla segir að þau Jón hafi langað í rúmgafl og sú hugmynd hafi síðan þróast yfir í parketlagða vegginn.
„Eftir verslunarleiðangur í hina frábæru Húsgagnahöll var bíllinn fylltur af fallegum hlutum sem hver og einn setur svo sannarlega mikinn svip á herbergið. Það er afar þægilegt að finna allt á einum stað líka sem okkur þótti mikill munur. En okkur langaði líka í rúmgafl og þannig fæddist þessi hugmynd með parketlagða vegginn sem rammar inn rýmið og gerir það hlýlegt. Restin púslaðist svo út frá því – grái liturinn á veggina, ljósin flottu, svarti stiginn og kollurinn sem náttborð, klukkan stóra og aðrir smáhlutir eins og krossaveggurinn, hrafnarnir og fleira.“

29227_Fjola_Katrin_Steinsdottir-8

Eruð þið dugleg að breyta heimilinu? Eru frekari framkvæmdir á dagskránni eða var þetta lokapunkturinn yfir i-ið?
„Við erum sæmilega breytinga-glöð á heimilinu og fyrirhugaðar eru framkvæmdir á baðherbergi, stofu og endurröðun á mublum, listaverkum og smáhlutum. Íbúðin er ekki stór en við erum sífellt að leita eftir leiðum til að stórri fjölskyldu líði sem best í notalegu rými,“ segir Fjóla Katrín Steinsdóttir.

SHARE