Morgundagur kaupir Hún

Morgundagur, útgáfufélag Fréttatímans, hefur keypt vefinn hún.is. Samhliða hefur Morgundagur gert samning við Móberg, fyrrum eigenda hun.is, um sölu á almennum auglýsingum inn á bland.is og 433.is.

„Það er tvennt sem við sjáum í þessu,“ segir Gunnar Smári Egilsson, útgefandi Fréttatímans. „Annars vegar mun samningurinn efla auglýsingasölu Morgundags á vefnum og skapa þar með tækifæri til að byggja upp fjölda vefsvæða í framtíðinni. Hins vegar fellur hun.is vel að ráðagerðum okkar um að eiga og reka fjölbreytta flóru af vefsvæðum í framtíðinni.“

Gunnar Smári segir að með hún.is komi gott starfsfólk sem muni ekki aðeins halda áfram að þjóna notendum hun.is heldur muni efla og styrkja aðra útgáfu á vegum Morgundags.

SHARE