Nestisvænt kjúklingasalat – Uppskrift

Það sem margir klikka á þegar kemur að hollu og næringarríku mataræði er skipulag. Hvers vegna klikkum við á skipulaginu ? Höfum við ekki tíma ? Höfum við frekar tíma til þess að renna við í skyndibita í hádeginu ? Það er staðreynd að oft tekur minni tíma að útbúa hollan hádegisverð heima og setja í nestisbox heldur en að standa í biðröð eftir tilbúnum mat. Það sparar þér líka dágóða summu að koma með heimatilbúið auk þess sem þú veist nákvæmlega hvað er í boxinu. Hér er uppskrift að hollu kjúklingasalati sem tekur aðeins korter að töfra fram. Það má svo að sjálfsögðu líka stækka skammtinn og bera fram fyrir liðið í kvöldmat.

IMG_20140209_082447

 

Kjúklingasalat (fyrir einn)

2-4 kjúklingalundir

1 harðsoðið egg

¾ tsk rósmarínkrydd

1 hvítlauskrif, marið

1 tsk ólífuolía

Smá sprauta sítrónusafi

Spínat

Salatblanda

1 tsk balsamikgljái

½ tsk hunang

Graskersfræ

Mangó

Vínber

 

Aðferð

1. Saxið lundirnar í litla bita og setjið í skál ásamt rósmarín, hvítlauk og olíu. Blandið  vel saman.

IMG_20140209_071658

2.Steikið kjúklinginn á pönnu.

3.Skolið spínat og salat og látið í box. Hrærið hunangi og balsamikgljáa saman og veltið salatinu upp úr því.

IMG_20140209_072943

4.Leggið kjúklinginn á salatbeðið.

5.Skolið vínber og skerið mangó út í salatið ásamt egginu.

6.Stráið graskersfræjunum yfir.

Kviss bamm búmm og þið eruð með langflottasta nestið í fyrirtækinu.

 

 

SHARE