Nicole Richie klæddist jakka af 6 ára dóttur sinni

Fatahönnuðurinn Nicole Richie fór í skáp 6 ára gamallar dóttur sinnar til að fá lánuð föt á dögunum. Nicole var á leiðinni á jólaviðburðinn Baby2Baby en hún var kynnir kvöldsins.

Nicole hefur mikið talað um það hversu góðan fatasmekk dóttir sín hefur en hún nefndi skartgripalínu eftir henni árið 2009.

She´s just so feminine – and way more girlie than me.

Þetta tjáði Nicole blaðamanni Philadelphia magazine í febrúar á þessu ári.

Frumkvöðullinn og raunveruleikastjarnan Bethenny Frankel fékk afar neikvæð viðbrögð þegar hún birti mynd af sér í Hello Kitty náttfötum af 4 ára gamalli dóttur sinni. Þremur mánuðum seinna var henni skipað af dómara að hætta að klæðast fötum af barninu í miðri skilnaðardeilu við fyrrum eiginmann sinn Jason Hoppy.

Ákvörðun Richie um að birta mynd af sér í jakka af 6 ára gamalli dóttir sinni kemur því mörgum á óvart en Nicole hefur oft verið gagnrýnd fyrir grannt holdafar. Hún hefur einnig viðurkennt að tímabili hafi hún verið of horuð.

1419006622_nicole-richie-467

 

1405281587_bethenny-frankel_1

Screen Shot 2014-12-20 at 11.20.05

Tengdar greinar:

Verst klæddu Hollywood stjörnurnar

Alltof grönn Denise Richards? – Myndir

Tara Reid heldur áfram að grennast

 

SHARE