Ófarðaðar stjörnur – Erum við ekki bara allar venjulegar? – Myndir

Það eru til konur sem mála sig mikið og svo eru til konur sem, að einhverra mati, mála sig of lítið. Það er auðvelt að fara í vítahring með förðunina sína og vera allt í einu orðin sú týpa sem allir halda að sé fárveik þegar hún skreppur út í búð án „grímunnar“. Þannig vill maður ekki vera. Það er einfaldlega of mikil vinna og alls ekki gott fyrir sjálfstraustið.

Hér eru nokkrar myndir af Hollywood- stjörnum sem hafa brugðið sér af bæ án farða, en við erum vön því að sjá þær í sínu besta pússi og með sjónvarpsförðunina. Þessar myndir eru því örlítið óhefðbundnar. Þetta eru bara allt venjulegar konur, eins og við allar.

 

SHARE