Ógeðslega fyndin heilsuráð frá Cosmo – kærustupararæktin árið 1981

Því ekki að taka eiginmanninn í hressilega bóndabeygju í byrjun dags og þjálfa líkamann í leiðinni? Nú, eða flétta fingrunum saman við fingur elskhugans, snara honum í gólfið og … taka nokkrar armbeygjur ofan á manninum?

Það lögðu sérfræðingar Cosmopolitan í það minnsta til árið 1981 – þegar Jane Fonda var enn í fullu fjöri og allar stúlkur gengu um í glansgöllum. Serían er ótrúlega fyndin og ber heitið Working Out With the One You Love – en hér má sjá opnuna sem sennilega varð ófáum pörum innblástur að æðisgengnum æfingum. Saman. Á stofugólfinu.

Hvort einhver slys urðu á fólki eru svo annað mál, en hér má sjá Cosmo í allri sinni dýrð í janúartölublaðinu sem út kom árið 1981 og hvað sérfræðingar lögðu til í þá daga …. myndi maður leggja í þetta í dag?

gallery_1424904847-working_out_1

gallery_1424904995-working_out_2

SHARE