Oreo – og karamellusúkkulaðibaka

Þvílík og önnur eins dýrð og dásemd frá Eldhússystrum.

Það eru bara 5 hráefni í þessari böku. Hún er syndsamlega góð og sjúklega djúsí. Það passar fullkomlega að drekka kaffi og fá sér smá(lesist: stóra) sneið af þessari dásemd. Hún er temmilega fljótgerð, auðveld og það þarf ekki að baka hana. Það eina sem þarf er pláss í ísskápnum.

Byrjið á að búa til botninn, best er að nota lausbotna kökuform.

Setjið botninn í kæli í amk 15 min.

Næsta mál á dagskrá er að útbúa karamelluna. Setjið 120 gr af smjöri og púðursykurinn í pott á miðlungs hita. Bræðið smjörið og hrærið því saman við púðursykurinn og hrærið stanslaust. Þegar blandan fer að sjóða er mikilvægt að hræra stanslaust í 1 mínútu, takið svo af hitanum og hrærið saman við 1/4 bolla rjóma þar til karamellan er kekkjalaus.

Kælið karamelluna.

Brytjið niður súkkulaðið og setjið það í skál. Hitið 1 bolla af rjóma að suðu og hellið síðan yfir súkkulaðið. Hrærið saman þar til allt súkkulaðið er bráðnað.

Oreo-og karamellu-súkkulaðibaka

36 oreos kökur

120gr + 120gr smjör

1/4 bolli + 1 bolli rjómi

2/3 bolli púðursykur

340 gr dökkt súkkulaði

 

Byrjið á að búa til botninn, best er að notið lausbotna kökuform.

Setjið oreos kökurnar í blandara og myljið þær vel. Bræðið 120 gr af smjöri og hrærið saman við oreos kökurnar. Hellið oreos kökunum í kökuformið og þjappið þeim í botninn og upp með hliðunum á kökuforminu. Ef þið eruð með 24 cm form er óþarfi að láta degið ná alla leið upp, 1/3 dugar. Ef formið er minna má það ná vel upp eða 2/3 amk. Setjið botninn í kæli í amk 15 min.

Næsta mál á dagskrá er að útbúa karamelluna. Setjið 120 gr af smjöri og púðursykurinn í pott á miðlungs hita. Bræðið smjörið og hrærið því saman við púðursykurinn og hrærið stanslaust. Þegar blandan fer að sjóða er mikilvægt að hræra stanslaust í 1 mínútu, takið af hitanum og hrærið saman við 1/4 bolla rjóma þar til karamellan er kekkjalaus. Láið karamelluna kólna.

Brytjið niður súkkulaðið og setjið það í skál. Hitið 1 bolla af rjóma að suðu og hellið síðan yfir súkkulaðið. Hrærið saman þar til allt súkkulaðið er bráðnað.

Takið botnin út úr ísskápnum, hellið karamellunni í bontinn og hellið súkkulaðinu yfir karamelluna. Stráið flögusalti yfir eftir smekk.

 

Endilega smellið á like á Facebook síðu systrana

SHARE