Ráðist á Brad Pitt á rauða dreglinum

Leikarahjónin Angelina Jolie og Brad Pitt mættu á rauða dregilinn fyrir frumsýningu myndarinnar Maleficient í Los Angeles. Það voru ekki allir jafn æstir að sjá leikarann Brad Pitt gefa eiginhandaráritanir því úkraínsk sjónvarpsstjarna kom og kýldi leikarann í andlitið.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem úkranínski maðurinn Vitalii Sediuk kemur sér í heimsfréttirnar því hann tók einnig upp á því á kvikmyndahátíðinni í Cannes að skríða undir kjól leikkonunnar America Ferrera. Vitalii Sediuk hefur nú verið bannaður frá öllum Hollywood frumsýningum en áður hefur hann stokkið inn á rauða dregilinn og meðal annars reynt að kyssa Will Smith og faðma klofið á nokkrum þekktum karl leikurum.

491468301

ferrara_index

Angelina-Jolie-Brad-Pitt-Maleficent-LA-Premiere

SHARE