REYKJAVÍK FASHION FESTIVAL hönnuðir 2014

Reykjavík Fashion Festival (RFF) kynnir með stolti þá sjö hönnuði sem koma til með að sýna hönnun sína á hátíðinni í ár. Hátíðin fer fram í fimmta sinn í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu samhliða HönnunarMars dagana 27. til 30. mars 2014. Þessir átta hæfileikaríku hönnuðir mynda sterkan hóp þar sem fjölbreytileiki og sköpunargáfa ræður ríkjum.

rff2

CINTAMANI

Cintamani hefur löngum verið þekkt sem eitt vinsælasta útivistarmerki landsins. Allt frá árinu 1996 hefur það séð til þess að Íslendingar séu klæddir í takt við hina ófyrirsjáanlegu veðráttu landsins. Cintamani er ekki einungis útivistarfatnaður, hann er ekki síður flottur götuklæðnaður. Í dag leggur Cintamani áherslu á fagurfræðileg gildi og hannar fatnað fyrir fólk sem meðvitað er um fallega hönnun og tísku. Nýleg lína sem hönnuð var í sameiningu við myndlistarmanninn Tolla Morthens sýnir sterk tengsl merkisins við náttúru og list en línan er unnin út frá málverkum Tolla af náttúrunni.

ELLA

Framleiðslufyrirtækið ELLA var stofnað árið 2011 og hefur á stuttum tíma skapað sér sterka ímynd sem vandað, hágæða slow-fashion merki. Að baki ELLA stendur Elínrós Líndal ásamt hópi hæfileikaríkra kvenna sem saman hafa það að markmiði að hanna hágæða nútímakvenfatnað með nærgætni við umhverfið í huga. Lykilorð ELLA eru gæði, ábyrgð og virðing sem skilar sér í vönduðum klassískum fatnaði fyrir konur sem vita hvað þær vilja.

Farmers Market

Farmers Market er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem stofnað var árið 2005 af þeim Bergþóru Guðnadóttur hönnuði og eiginmanni hennar Jóel Pálssyni tónlistarmanni. Í gegnum árin hefur merkið skapað sér fastan sess á íslenskum markaði. Innblástur er sóttur í ræturnar; hina einstöku íslensku arfleifð þar sem menn og dýr hafa lifað í sambýli við harðger náttúröfl öldum saman. Fatnaður frá Farmers Market er tilvalinn til útivistar jafnt sem daglegs borgaralífs.

JÖR by Guðmundur Jörundsson

Tískufyrirtækið JÖR var stofnað seinni hluta árs 2012 en Guðmundur Jörundsson er útskrifaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands. Árið 2013 sýndi JÖR by Guðmundur Jörundsson sína fyrstu kvenfatalínu auk þess að opna verslun sína í miðborg Reykjavíkur.   Má segja að fyrirtækið hafi svo sannarlega slegið í gegn á síðasta ári og hafa margir klæðst fatnaði frá JÖR á opinberum vettvangi.

Magnea Einarsdottir

Magnea Einarsdóttir er ungur og upprennandi fatahönnuður sem hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarið. Magnea lauk námi í fatahönnun með áherslu á prjón frá hinum virta skóla Central Saint Martins í Bretlandi árið 2012. Hefur hún haft í nægu að snúast frá útskrift og bauðst meðal annars nýverið að selja sína fyrstu línu í nýrri dömudeild JÖR hérlendis. Flíkur Magneu eru að miklu leyti handgerðar úr efnum á borð við ull og gúmmí og er því mikil vinna sem liggur að baki hverri flík. Eru flíkurnar einfaldar í sniðum þar sem smáatriði í textílnum gefa skemmtilegt yfirbragð.

REY

Rebekka Jónsdóttir er hönnuðurinn á bak við fatamerkið REY. Rebekka útskrifaðist sem fatahönnuður frá Fashion Institute of Design and Merchandising í Los Angeles árið 2008 og stofnaði REY ári síðar. Fatamerkið REY leggur mikið upp úr heiðarleika og gæðum með það að markmiði að skapa flíkur sem eru í senn tímalausar og fágaðar. Mikil áhersla er lögð á gæði í efnisvali auk klæðskerasaums sem endurspeglast í klassískum flíkum sem standast tímans tönn.

Sigga Maija

Sigga Maija er nýstofnað fatamerki Sigríðar Maríu en hún útskrifaðist sem fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands árið 2011 en síðan þá hefur hún starfað sem aðstoðarkennari við skólann. Haustið 2012 fór hún til Parísar í starfsnám hjá tískuhúsi Sonia Rykiel. Þessi efnilegi fatahönnuður hefur starfað sem aðstoðarhönnuður hjá Kron by KronKron og starfað sjálfstætt hjá JÖR by Guðmundur Jörundsson.

Ziska

Harpa Einarsdóttir er hönnuður og stofnandi Ziska. Harpa lauk námi frá Listaháskóla Íslands árið 2005 en síðan þá hefur hún tekið þátt í fjölda skapandi verkefna, búningahönnuður fyrir leikhús og kvikmyndir.  Hún var tilnefnd til norrænu Code hönnunarverðlaunanna fyrir hönnun og persónusköpun í tölvuleiknum EVE Online og stóð uppi sem sigurvegari í Reykjavík Runway hönnunarkeppninni árið 2011.

 

 

Stakur miði kostar 2.990 kr. Miðasalan fer fram á midi.is og harpa.is.

SHARE