Rihanna stal athyglinni í gegnsæjum kjól

CFDA Fashion Awards fóru fram í New York í gærkvöldi. Verðlaunin er afhent árlega til að heiðra ameríska fatahönnuði fyrir framlag þeirra til tískuiðnaðarins. Söngkonan Rihanna var valin Fashion Icon 2014 og voru margir spenntir að sjá í hverju Rihanna myndi mæta.

Söngkonan stóð að sjálfsögðu undir væntingum og mætti í gegnsæjum síðkjól þakin í 200.000 Swarovski kristöllum. Rihanna sendi ákveðin skilaboð með þessum klæðnaði sem sýndi báðar geirvörturnar á henni en Instagram bannaði tímabundið aðgang hennar vegna mynda sem sýndu þær. Eftir að Instagram bannaði aðgang söngkonunnar lokaði hún alveg fyrir aðgang sinn á vefmiðlinum vegna þess að hún var ósátt.

2014 CFDA Fashion Awards - Arrivals

2014 CFDA Fashion Awards - Arrivals

2014 CFDA Fashion Awards - Winners Walk

SHARE