Risalamande með kirsuberjasósu

Þessi eftirréttur er sko jólalegur með eindæmum frá Fallegt & Freistandi

RISALAMANDE MEÐ KIRSUBERJASÓSU

 UPPSKRIFT FYRIR 2-3

1 dl grautargrjón
1 ¼ dl vatn
5 dl mjólk
2 msk sykur
1 vanillustöng
100 gr saxaðar möndlur
3-4 dl rjómi
1 krukka kirsuberjasósa frá Den Gamle Fabrik

 

Aðferð:

Setjið hrísgrjónin í sjóðandi vatn í potti með þykkum botni. Sjóðið í 2 mínútur og bætið mjólkinni saman við. Látið suðuna koma upp aftur og sjóðið ásamt vanillustönginni við lágan hita í 45-50 mínútur. Hrærið í öðru hvoru.

Kælið í að minnsta kosti 30 mínútur eða þar til grauturinn er alveg kólnaður – helst yfir nótt.  Smakkið til með sykri, kornum úr vanillustönginni og söxuðum möndlum. Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við grautinn.

Berið fram risalamande með kaldri eða volgri kirsuberjasósu og skreytið gjarnan með hökkuðum möndlum og vanillukornum.

 

Verði ykkur að góðu!

Fallegt & Freistandi á Facebook

SHARE