Sænskar pönnukökur

Þessar eru alveg „möst“ um helgina en þessi dásamlega uppskrift kemur frá Ljúfmeti og Lekkerheit. 

Sænskar pönnukökurÉg hef alltaf verið ferlega klaufsk þegar kemur að íslenskum pönnukökum og hef satt að segja aldrei komist upp á lagið með að steikja þær þunnar og fallegar. Framan af kenndi ég pönnukökupönnunni um en eftir að tengdamamma mín steikti fullkomnar pönnukökur trekk í trekk á henni neyddist ég til að horfast í augu við að klaufaskapinn yrði ég að skrifa á mig.

Sænskar pönnukökur

Sænskar pönnukökur

Sænskar pönnukökur (uppskrift frá Kokaihop)

  • 2,5 dl hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • smá vanillusykur
  • 6 dl mjólk
  • 4 egg
  • 1 msk sýrður rjómi
  • 3 msk smjör til að steikja upp úr (ég nota mun meira)

Blandið þurrefnum saman í skál. Bætið mjólk og sýrðum rjóma saman við og hrærið vel saman. Hrærið að lokum eggjunum í blönduna. Steikið upp úr smjöri.

Sænskar pönnukökur

Sænskar pönnukökur

 

SHARE