Selma Blair borin frá borði á sjúkrabörum

Leikkonan Selma Blair var flutt á spítala eftir að hún missti gjörsamlega stjórn á sér í flugi í vikunni. Hún var að koma heim, ásamt syni sínum, eftir að hafa eytt helginni með barnsföður sínum og syni í tilefni af feðradeginum.

Selma birti þessa mynd á Instagram rétt fyrir atvikið

 

We’re leaving on a jet plane. Dad is already asleep. Not for long. Bwahahahha . #fathersdayweekend

A photo posted by Selma Blair (@therealselmablair) on

Talið er að Selma hafi blandað saman lyfjum og áfengi í flugvélinni og þess vegna orðið hálfrugluð í fluginu. Hún var flutt frá borði á börum.

Daginn eftir atvikið tjáði Selma sig um atvikið. Í tilkynningunni sagði: „Ég gerði stór mistök í gær. Eftir yndislega ferð með syni mínum og pabba hans, blandaði ég áfengi saman við lyf, sem varð til þess að ég vissi ekki hvað ég var að gera. Mér þykir þetta mjög leiðinlegt.“ Selma biður farþega og starfsfólk flugvélarinnar líka innilega afsökunar.

 

SHARE