Sérstök og sérlega góð frönsk súkkulaðikaka

Þessi uppskrift er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Þetta er ekki hin hefðbundna franska súkkulaðikaka en þetta er svo sannarlega kaka sem enginn súkkulaðiunnandi ætti að láta framhjá sér fara.

Sjá einnig: Frönsk súkkulaðikaka með æðislegu kremi

IMG_3623

Frönsk súkkulaðikaka

250 sykur

150 ml vatn

400 g suðusúkkulaði

150 g smjör

4 egg

4 msk hveiti

  • Sjóðið sykur og vatn saman í potti þar til blandan verður að þunnu sýrópi.
  • Bræðið suðusúkkulaði og smjör saman í öðrum potti.
  • Blandið sýrópinu saman við súkkulaðiblönduna í skál og hrærið einu eggi í einu saman við.
  • Sigtið að lokum hveiti í skálina og blandið saman við deigið.
  • Til að hræra hveitinu saman við deigið nota ég pískara svo ekki myndist kekkir.
  • Smyrjið smelluform og sníðið smjörpappír í botninn.
  • Hellið deiginu í formið og bakið við 170° í 25-30 mínútur á undir- og yfirhitastillingu.
  • Athugið að deigið er afar þunnt svo passið að smelluformið sé þétt og leki ekki. Eins og sést á myndinni er súkkulaðikakan svolítið þunn einmitt af því að gamla góða smelluformið klikkaði.
  • Franska súkkulaðikakan er langbest þegar hún hefur verið geymd í ísskáp í 1-2 daga.
SHARE