SKELFILEGT: Górilla sprengir öryggisgler í dýragarði sökum áreitis

Enginn vafi leikur á því að væru górillur gæddar röddu sem mannfólkið gæti skilið, væri engin slík dýr að finna bak við öryggisgler í dýragörðum víðsvegar um heim. Reyndar er erfitt að gera sér í hugarlund hvernig dýrunum líður innilokuðum meðan gestir og gangandi geifla sig allan liðlangan daginn bak við rimlana sem skilja að frelsi og fangelsun.

Af og til glittir þó í örvæntinguna sem grunlausir gestir festa á filmu meðan á heimsókn  þeirra í dýragarða stendur. Þannig brást tæplega 200 kílóa górilla ókvæða við þegar ung stúlka barði galsafengin á brjóst sér framan við öryggisglerið í Henry Doorly Zoo – eða dýragarði nokkrum í Ohama, Nebraska en foreldrar hennar fönguðu óhugnarlegt mótsvar silfurbaksins á farsíma sinn, sem eðlilega olli gestum ómældri skelfingu.

Sjá einnig: Dýr sem hegða sér eins og menn – Myndband

Myndbandið hér að neðan sýnir einnig hversu mikilvægt er að virða ólík boðskipti og þjónar sem verðug áminning þess að sakleysisleg bending sem að mati okkar mannfólksins felur í sér glettni, getur orkað ógnandi og jafnvel hræðilega í augum dýranna. Líkamstjáning er öflugt samskiptatæki og sér í lagi þegar dýr eiga í hlut. Þannig getur beint augnsamband eða bringusláttur, skjannahvítt bros þar sem skín í allar tennur verið merki um árásargirnd meðal apa.

Sjá einnig: Dýragarður dauðans – EKKI fyrir viðkvæma – Myndir

Górillan í myndbandinu hér að neðan heitir Kijoito og er haft eftir starfsmönnum dýragarðsins að þrátt fyrir að dýrið hafi sprengt öryggisglerið eftir endilöngu hafi engin raunveruleg hætta verið á ferð. Alvarlegt þó og alvarleg áminning þess efnis að fara varlega að innilokuðum dýrum í búrum:

SHARE