Snickers-marengsterta með ástaraldin

Hérna fáum við enn einn gullmolann af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Þessi terta er einstaklega ljúffeng. Algjört hnossgæti. Enda inniheldur hún Snickers, sem hefur þá eiginleika að breyta vatni í vín. Eða svo gott sem – þið vitið.

IMG_5011

Snickers marengs með ástaraldin

Marengsbotnar

4 eggjahvítur

3 dl sykur

3 bollar Rice Krispies

  • Þeytið eggjahvítur í skál þar til þær verða stífar og ekki lengur froðukenndar. Bætið við sykri og stífþeytið. Blandið því næst Rice Krispies varlega saman við blönduna. Teiknið með blýanti hring á sitthvora bökunarpappírsörkina. Gott er að nota botninn úr 20 eða 24 cm kökuformi til að teikna eftir. Skiptið marengsblöndunni jafnt á bökunarpappírsarkirnar og smyrjið þannig að hún fylli upp í teiknuðu hringina.
  • Bakið marengsbotnana við 120° í 60 mínútur.

Rjómablanda

400 ml þeyttur rjómi

250 gr jarðarber

3 ástaraldin

100 gr Snickers

  • Skerið jarðarber í litla bita, skerið ástaraldin í tvennt og skafið innan úr þeim með skeið. Saxið Snickers í litla bita og blandið saman við þeyttan rjóma ásamt jarðarberjum og innihaldi ástaraldinanna.
  • Hvolfið öðrum marengsbotninum á fallegan kökudisk og smyrjið rjómablöndu jafnt yfir. Leggið svo hinn botninn ofan á.

Snickers-krem

200 gr Snickers

40 gr suðusúkkulaði

50 gr smjör

4 eggjarauður

60 gr flórsykur

  • Skerið Snickers í bita og bræðið í potti ásamt suðusúkkulaði og smjöri. Kælið blönduna í 10-15 mínútur. Þeytið eggjarauður þar til þær verða léttar og ljósar og bætið flórsykri smátt og smátt saman við. Þegar blandan hefur þykknað, bætið súkkulaðiblöndu saman við og þeytið í 2-3 mínútur.
  • Hellið kreminu jafnt yfir marengstertuna og skreytið tertuna að vild.

IMG_5015

Tengdar greinar:

Hitaeiningabomba – Epla og snickers salat – Uppskrift

Dásamleg Snickerskaka – Uppskrift

Heimatilbúnir Snickers bitar – Uppskrift

SHARE