Spaghetti bolognese

Þessi frábæra uppskrift að Spaghetti bolognese kemur frá Lólý.is. Ekta ítalskt!

Spaghetti bolognese

500 gr nautahakk
1 laukur
2 hvítlauksrif
3 tsk garam masala
1 tsk tandoori masala
2 tsk chilliduft
1 msk kjötkraftur
1 msk tómatpurré
1 dós niðursoðnir tómatar
2 msk chillitómatsósa eða önnur tómatsósa
2 msk Dijon sinnep
salt og pipar
Salt og pipar eftir smekk
1 msk þurrkað óreganó
Hvítlaukskrydd
1/2 dós af hvítlauksrjómaosti /piparrjómaostur eða bara báðir
Lúka fersk basilika
500 gr spaghettiSaxið laukinn og hvítlaukinn og steikið í olíu á pönnu, kryddið með garam masala, tandoori masala og smá hvítlaukskryddi.  Þegar laukurinn er orðinn mjúkur þá bætið þið nautahakkinu út í  og steikið vel og kryddið með salti og pipar.  Bætið síðan út í tómatpúrreé,chillitómatsósunni og niðursoðnu tómötunum og  kryddið með chillidufti, kjötkrafti og þurrkaða óreganóinu svo er bara að krydda vel eftir smekk. Síðan blanda ég yfirleitt svona eins og hálfri dós af hvítlauksrjómaosti og piparrjómaosti út í.  Það er voðalega gott að setja basilikuna út í, í lokin. Svo er bara að láta þetta malla svolítið – mér finnst bolognese alltaf best ef ég geri það deginum áður.
Svo er bara að sjóða spaghettíið og hita gott brauð og þá er komin þessi líka eðal ítalska máltíð en auðvitað má ekki gleyma parmesanostinum.
log lol
SHARE