Svona færðu mjúkt og fallegt hár

Góð djúpnæring gefur hárinu nauðsynlega næringu til að viðhalda heilbrigði þess og gefur fallegt glansandi útlit. Til að ná sem bestum árangri er mikilvægt að nota djúpnæringuna á réttan máta.

Svona á að gera:
Notaðu djúpnæringu með reglulegu millibili til að halda hárinu mjúku, koma í veg fyrir klofna hárenda og viðhalda lengd. Sumum hentar að nota djúpnæringu á 3 til 4 daga fresti, á meðan öðrum hentar að nota hana á 2 vikna fresti. Finndu út hvað hentar þér með því að byrja á vikulegri notkun, ef hárið virðist of flatt skaltu draga úr notkun, en ef það er of þurrt prófaðu að nota næringuna tvisvar í viku.

Ef þú hitar djúpnæringuna upp í 35 gráður þá nærðu fram aukinni virkni og hárið verður ennþá mýkra og sterkara. Best er að hita hana upp með því að stinga brúsanum í heitt vatn frekar en að nota örbylgjuofn. Notaðu hitamæli til að mæla hversu heit hún verður.

Byrjaðu á að bera djúpnæringu á hárendana og endaðu á því að bera í hársvörðinn. Endarnir þurfa helst á næringunni að halda þar sem þeir geta verið þurrir og með þessum hætti fá þeir aðeins lengri tíma til að sjúga í sig alla næringuna.

Svona á ekki að gera:
Ekki sofa með djúpnæringu í hárinu yfir nótt. Hún á að virka hratt og örugglega og ætti ekki að vera í hárinu í meira en 20 til 30 mínútur. Ekki nota hana heldur eins og „leave-in-conditioner“ sem þarf ekki að skola úr hárinu. Ef hún er of lengi í hárinu þá getur hárið orðið slappt og erfiðara að meðhöndla það.

Greinin birtist fyrst í amk, fylgiblaði Fréttatímans

SHARE