Svona losnarðu við lúsina

Skólar og leikskólar eru varla byrjaðir eftir sumarfrí en foreldrum eru strax farnir að berast póstar um lúsasmit. Lúsin er hvimleið og hún fer ekki í manngreinarálit, því er nauðsynlegt fyrir alla foreldra að kemba börnin til að uppræta faraldurinn. Til að draga úr líkum á smiti er gott fyrir börnin að vera með buff á höfðinu og þá er talið að tea tree olía geti spornað við smiti.

Lúsin getur farið á milli hausa ef bein snerting verður frá hári til hárs í nægilega langan tíma til að hún geti skriðið á milli en hún getur hvorki stokkið, flogið né synt. Höfuðlús sem fallið hefur út í umhverfi verður strax löskuð og veikburða og getur þ.a.l. ekki skriðið á annað höfuð og sest þar að. Þess vegna er talið að smit með fatnaði og innanstokksmunum sé afar ólíklegt en ekki er þó hægt að útiloka að greiður, burstar, húfur og þess háttar, sem notað er af fleiri en einum innan stutts tíma, geti hugsanlega borið smit á milli.
Einkenni smits

Tveir af hverjum þremur sem smitaðir eru af höfuðlús hafa engin einkenni.
Einn af hverjum þremur fær kláða. Kláðinn stafar af ofnæmi, sem myndast með tímanum (frá nokkrum vikum að þremur mánuðum), gegn munnvatni lúsarinnar sem hún spýtir í hársvörðinn þegar hún sýgur blóð. Kláðinn getur orðið mikill og húðin roðnað og bólgnað þegar viðkomandi klórar sér og í einhverjum tilfellum geta komið sár sem geta sýkst af bakteríum.
Greining
Leita þarf að lús í höfuðhárinu með nákvæmri skoðun, en það er best gert með kembingu með lúsakambi yfir hvítum fleti eða spegli og hafa góða birtu.
Finnist lús, jafnvel bara ein, er það merki um að viðkomandi sé með höfuðlús og þurfi meðferð. Meðferðin getur falist í kembingu eingöngu (einu sinni á dag í 14 daga) eða meðferð með lúsadrepandi efnum.
Kembing

Mikilvægt er að nota góðan lúsakamb. Bilið milli teinanna má ekki vera meira en 0–3 mm. Best er að nota kamba með stífum teinum.

Kembing í leit að höfuðlús í blautu hári

Þvo hár með venjulegri aðferð, skola og setja venjulega hárnæringu sem höfð er áfram í hárinu og hárið haft blautt.
Greiða burtu allar flækjur – hárið er enn blautt.
Skipta hárinu upp í minni svæði, til að auðvelda skoðun alls hársins.
Skipta frá greiðu/bursta yfir í lúsakamb og hafa undir hvítt blað eða spegil, til að auðveldara sé að sjá hvort lús fellur úr hárinu.
Draga kambinn frá hársverði að hárendum og endurtaka þar til farið hefur verið vandlega í gegnum allt höfuðhárið.
Eftir hverja stroku skal skoða hvort lús hefur komið í kambinn og þurrka úr með bréfþurrku áður en næsta stroka er gerð.

Nit lúsarinnar, sem líkist flösu í fljótu bragði en er föst við hárið, er oft að finna ofan við eyrun og við hárlínu aftan á hálsi. Nit ein og sér er ekki órækt merki um smit, sérstaklega ekki ef hún er langt frá hársverðinum því þá er lúsin í henni að öllum líkindum dauð.

Eftir kembingu alls hársins skal skola úr hárnæringuna.

Kemba aftur til að athuga hvort einhver lús hefur orðið eftir.

Ef lús finnst við kembingu þarf að þvo hárnæringuna úr og þurrka hárið, áður en meðferð með lúsadrepandi efni hefst.

Þrífa kambinn með heitu sápuvatni og þurrka.
Lúsadrepandi efni sem seld eru í íslenskum lyfjaverslunum

Hedrin
Hedrin once
Hedrin Treat & Go
Licener

 

 Heimildir: Fréttatíminn

SHARE