Sykurpúðar í Vodka Jello

Fyrirsögnin hljómar brjálæðislega ekki satt?  En þetta er stórskemmtilegt og vekur mikla lukku í grillveislunni.  Svo má taka hugmyndina enn lengra og kveikja í skykurpúðunum ef það er ekki verið að grilla, en bara passa að blása á þá áður en einhver bítur í þá!

 

Þá er það fyrsta skrefið, byrja á að taka smá úr miðjunni á sykurpúðunum.

jello1

Má alveg borða það í staðinn fyrir að henda!

Pakki af uppáhalds litnum þínum af Jello

170 ml vatn

170 ml vodka

1 stór poki af sykurpúðum

Grillpinnar

Bacardi 151 ( ef þú ætlar að kveikja í þeim beint)

 

  1. Takið úr miðjunni af sykurpúðunum
  2. Blandið saman Jello, vatni og vodka
  3. Kælið í ísskáp í stutta stund, það ætti að vera enn fljótandi þegar það er sett í miðjuna á sykurpúðunum.  Best er að nota sprautu til að setja í púðana svo að liturinn sullist ekki út um allt.  Setjið svo herlegheitin inn í ísskáp og látið kólna þar til að Jello-ið er orðið stíft.

 

Þetta er skemmtileg viðbót við veisluna hvort sem Jello-skotið er borið fram beint til að borða eða grillað.

jello2

 

SHARE