Teriyaki „Stir Fry“ kjúklingur

Nú er ég orðin fær í flestan sjó og tel mig vera orðin algjöran veislukokk því ég er jú búin að „hrista“ út úr erminni tvo austurlenska rétti á innan við viku og slegið í gegn í bæði skiptin. Ég ákvað því að láta slag standa og gera einn í viðbót. Að þessu sinni varð Teriyaki kjúklingur fyrir valinu en þessi réttur er bragðmikill en það er hægt að nota fisk, naut, svín eða kjúkling í hann, fer bara eftir stemningunni.

Sjá einnig: Auðvelt Chow Mein

Hér er uppskriftin:

 

 

5 msk Blue Dragon Japanese sojasósa
1 poki Blue Dragon Teriyaki Stir Fry
2 msk púðursykur
4 kjúklingabringur – skornar í stóra bita
2 tsk hveiti
2 tsk ólífuolía
2 tsk ristuð sesamfræ
2 vorlaukar, niðurskornir
2 Tilda Basmati suðupokar

Aðferð:

Ég byrjaði á því að blanda saman sojasósunni og sósunni í pokanum og púðursykri í skál.

blue dragon nota3

 

 

Sjá einnig: Gómsæt steikt hrísgrjón með kjúkling

Ég setti svo sirka helminginn af blöndunni í plastboka og niðurskorinn kjúklinginn saman við, gott er að stinga göt á kjúklinginn með gaffli áður. Ég lokaði svo með klemmu og setti í ísskápinn í svona klst og þetta var þá svona fádæma girnilegt

blue dragon nota3b

 

 

Eftir um það bil 45 mínútur hófst ég handa við það sem átti eftir að gera, þ.e. að skera niður vorlauk og sjóða hrísgrjónin.  Þá blandaði ég hveiti saman við smá vatn (2 tsk) og hrærði saman. Svo setti ég hinn helming marineringarinnar og hveitiblönduna á pönnu og hitaði þangað til það þykknaði aðeins. Svo náði ég í kjúllann og setti á pönnuna og eldaði hann í sósunni.

Sjá einnig: Syndsamlega ljúffengt satay-kjúklingasalat

Svo einfalt var það! Ég setti svo sesamfræ og vorlauk yfir áður en þetta fór á borðið. Namm!!!

bluedragonnota3d

 

 

SHARE