The Skull: Nætursvartur hægindaskúlptúr með flauelsáklæði

Skorinn af hárnákvæmni og mótaður úr polyester og trefjagleri, nætursvartur og tígurlegur skúlptúr. Þetta er Hauskúpan eða The Skull eins og stóllinn sem sjá má hér að neðan nefnist.

.

theskullheildar

.

Glæsilegra verður það vart, en húsgagnið er á mörkum þess að vera skúlptúr og legubekkur. Flauelssvört setan kórónar svo þessa ótrúlegu hönnun sem sýnir stórbrotna hauskúpu. Enginn vafi er á því að svo stórbrotið húsgagn sem er listasmíði hvar sem er á litið sómir sér best í stóru rými, þar sem birtan dregur fram mótið sjálft og lögun hauskúpunnar en engum sögum fer þó af því hvernig er að sitja í stólnum góða.

Betur má fræðast um The Skull á vefsíðunni Harow Studio  og húsgagnahönnuðinn sjálfan, Harold Sangouard.

LE-CRANE0

LE-CRANE

LE-CRANE2

LE-CRANE3 

LE-CRANE4

SHARE