Þjóðarsálin: Reynsla mín af því að vinna með múslima

ATH. Þessi grein er aðsend. Í Þjóðarsálinni getur fólk sent inn greinar, nafnlaust. Skoðanir sem að birtast í innsendu efni endurspegla ekki skoðanir Hún.is

————————

 

Ég er 28 ára íslenskur verkamaður og ég vinn og bý í Kaupmannahöfn. Eftir að hafa séð mikla umfjöllun um Islam í íslenskum fjölmiðlum langar mig að segja frá reynslu minni af einum múslima sem ég vinn með hér í Kaupmannahöfn.

Þetta er bara einn maður sem ég er að tala um og ég geri mér grein fyrir að það er ekki hægt að dæma alla múslima út frá honum.
Hann er giftur, er í kringum fertugt og kemur frá Pakistan.

Það sem fer mest í taugarnar á mér við hann er hvað hann er rosalega mikill perri í kringum kvenkyns samstarfsfólk okkar og hvað mér finnst hann hlutgera konur mikið. Hann talar mjög oft um hvað honum finnist 18 ára stelpur vera kynörvandi. Hann talar líka um að hann vilji eignast kærustu sem er 18 ára. Ef ég les á milli línanna þegar hann segir mér þessa hluti þá skilst mér að hann vilji sofa hjá eins ungri stelpu og lögin í Danmörku leyfa.

Ég held líka að hann væri líklegur til að stunda kynlíf með miklu yngri stelpum ef hann kæmist upp með það.

Annað er að mér finnst hann líta á konuna sína sem einhvern hlut. Honum virðist vera slétt sama þó hann haldi framhjá henni. Hann er karlmaður og þess vegna má hann halda framhjá eins og honum sýnist, meðan eiginkonan hans á bara að vera á sínum stað og sennilega gegna einhverju hlutverki eins og að þrífa og elda ofan í hann. Ég spurði hann einhvern tímann hvort hann vildi ekki bara skilja við hana en hann ansaði mér ekki.

Hann segir mjög oft óviðeigandi hluti við stelpurnar sem vinna með okkur. Stelpurnar eru nánast allar í kringum tvítugt og sumar eru táningar. Það sem hann segir gefur í skyn að hann vilji sofa hjá þeim. Hann notar síðan sem skjöld að hann var bara að grínast þegar stelpurnar bregðast illa við.

Fyrir utan perraskapinn og kvenfyrirlitninguna finnst mér hann reyna að halda sér eins mikið frá vestrænni menningu og hann getur. Mér finnst ég varla getað talað um neitt við hann sem tengist ekki vinnunni sjálfri. Hann virðist ekki þekkja sjónvarpsefni, tónlist og aðra afþreyingu sem allir sem ég hef kynnst.

Mér finnst hann oft vera rosalega þröngsýnn þegar við tölum saman. Hann talaði einhvern tímann um hvað hann langaði að losna við aukakílóin og þá stakk ég upp á við að hann að fara að stunda líkamsrækt. Hann haðneitaði slíku og mér fannst hann gefa í skyn að hann myndi aldrei á ævi sinni stíga feti inn í líkamsræktarstöð.

Ég þekki trú hans og menningu ekki nógu mikið til að geta sagt til um hvort þeir þættir hafi mótað persónu hanns á einhvern hátt.

Þetta er bara mitt viðhorf til eins fertugs Pakistönskum múslima sem býr í Kaupmannahöfn og vinnur með mér.

Ég hef hitt nokkra menn af ólíkum uppruna og kynstofni sem eru svipaðir og hann hvað varðar perraskapinn. Hann stendur mjög upp úr með að vera einn mesti perri sem ég hef hitt og hvað hann er ofboðslega siðblindur með að halda framhjá konunni sinni.

SHARE