Þjóðþekktir Íslendingar gefa merkilega hluti til Mottumars

Í tilefni af Mottumars, átaki Krabbameinsfélagsins, hefur Netgíró, í samstarfi við Bland.is, ákveðið að standa að uppboði á fjölmörgum munum þjóðþekktra Íslendinga sem og viðburðum tengdum þeim.

Uppboðin hefjast í dag, miðvikudaginn 12. Mars,  og standa í 10 daga og rennur allur ágóði óskiptur til Mottumars.

Meðal gripa sem boðnir verða upp má nefna Chelsea stuttbuxur sem Eiður Smári Guðjohnsen lék í, en það er vinur hans Auðunn Blöndal sem gefur þær, gítarinn úr kvikmyndinni Málmhaus sem var í eigu aðalpersónu myndarinnar en það er Ragnar Bragason leikstjóri sem gefur hann og hlaupabuxur skemmtikraftsins Péturs Jóhanns Sigfússonar úr Reykjavíkurmaraþoninu á síðasta ári og má taka fram að þær hafa ekki verið þvegnar eftir hlaupið.

Þá gefur hljómsveitin Dimma sérsmíðaðan míkrafónstand,  útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson gefur keppnisskó Arnars Grant og  leikarinn Jóhannes Haukur gefur átakinu  út að borða, leikhús fyrir 2 og tækifæri til að hitta leikara eftir sýningu.  Þá má geta þess að leikstjórinn Bragi Þór Hinriksson gefur síðustu eintökin af hinni löngu uppseldu mynd Algjör Sveppi og töfraskápurinn. Eintökin  eru árituð af Sveppa.

Kristín Stefáns gefur líka til uppboðsins bókina sína Förðun, skref fyrir skref  og glæsilegar förðunarvörur.

Það er því ljóst að hægt er að fá stórskemmtilega hluti til eignar með þátttöku í uppboði Netgíró til styrktar Mottumars frá og með miðvikudeginum 12. mars.  Ykkar framlag getur skipt sköpum. 

SHARE