Vandaðu þig við raksturinn

Rakstur getur haft nokkra hvimleiða fylgikvilla ef ekki er vandað til verks. Rauðar bólur, inngróin hár og útbrot eru eitthvað sem enginn vill skarta, hvorki á andliti eða leggjum. Þessi atriði er gott að hafa í huga þegar rakvélin er brúkuð.

1. Gott er að hita húðina fyrir rakstur. Ef þú rakar þig í sturtunni er gott að gera það í lokin, ef ekki skaltu leggja heitan þvottapoka á svæðið í nokkrar mínútur fyrir rakstur. Hitinn mýkir hárin og opnar húðina, þannig að raksturinn verður auðveldari og heppnast betur.

2. Notaðu vel beitt rakvélarblað og passaðu upp á að það sé ekki orðið gamalt. Bitlaust blað getur orsakað bæði útbrot, bólur og skurði.

3. Gættu þess að raka alltaf í sömu átt og hárin vaxa. Rakstur á móti hárvexti er ein helsta ástæðan fyrir inngrónum hárum.

4. Til þess að koma í veg fyrir rauðar bólur eftir rakstur er gott að skrúbba svæðin sem þú rakar reglulega með kornskrúbbi tvisvar í viku.

5. Eftir rakstur er gott að kæla húðina snögglega með köldu vatni, þannig lokast húðin og minni líkur verða á kláða og pirringi.

6. Að loknum rakstri skaltu þurrka svæðið varlega með mjúku handklæði. Gott er að nota barnapúður á húðina þegar hún er orðið alveg þurr eða milt og lyktarlítið húðkrem.

SHARE