Var með fleiri heilsukvilla en hún hafði tölu á

Júlía ákvað að breyta um lífsstíl í þeirri von um að líða betur. Árangurinn lét ekki á sér standa og lífsstíllinn varð að starfsferli. Hún sendi nýlega frá sér bókina Lifðu til fulls til að auðvelda fleirum leiðina að bættum lífsstíl og hollara matarræði.

„Fyrir fimm árum var ég algjör sykurfíkill og var háð því að fá nammi um helgar. Ég beið alltaf eftir helgunum til að geta fengið mér nammi, því ég var með nammidaga um helgar, eins og svo margir Íslendingar. En ég fékk mér oft ís á kvöldin í miðri viku og elskaði Ben&Jerry’s og borðaði mjög mikið af skyndibita í menntaskóla. Þetta hafði aldrei nein áhrif á mig, að ég hélt, en ég áttaði mig skyndilega á því að ég var komin með fleiri heilsukvilla en ég hafði tölu á,“ segir Júlía Magnúsdóttir, næringar- og lífsstílsráðgjafi, heilsumarkþjálfi, eigandi Lifðu til fulls heilsumarkþjálfunar og nú höfundur samnefndar bókar sem kom út á dögunum. En bókin, Lifðu til fulls, er nú fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson.

Greip allar flensur

Júlía tekur á móti blaðamanni á heimili sínu í Kópavogi, rétt við Elliðavatn, og er búin að útbúa handa okkur dýrindis morgunverðarskál – gráfíkjumúslí með kókosrjóma beint úr bókinni.

Hún hafði glímt við ýmsa heilsukvilla um hríð, suma frá unga aldri, en tengdi þá ekkert endilega við lífsstíl sinn eða mataræðið. Það var ekki fyrr en hún ákvað að gera róttækar breytingar á mataræðinu, og fór á plöntumiðað fæði, að hún áttaði sig á því að það var ekki eðlilegt að upplifa stöðug líkamleg óþægindi. „Það var svo margt sem ég hafði lært að lifa með. Þegar ég var yngri þá var ég til dæmis alltaf fyrst til að grípa allar flensur og greindist líka með iðraólgu, sem lýsir sér með meltingarkrömpum og hægðatregðu.

Vildi ekki liggja veik

Fyrir um fimm árum var Júlía orðin virkilega slæm af iðraólgunni, hún var alltaf veik og þrátt fyrir að sofa mjög mikið var hún alltaf þreytt. Þá var hún farin að þjást af liðverkjum sem öftruðu henni frá því að hlaupa – eitthvað sem hún elskaði gera. „Ég greindist síðar með latan skjaldkirtil sem hægir á brennslunni og getur valdið áðurtöldum einkennum. Síðan greindist ég með PMS, sem er hormónaójafnvægi sem getur raskað tíðahringnum, dregið úr líkum á barneignum og valdið fjölda annarra einkenna. Þegar ég var komin með þetta allt þá sá ég bara að ég varð að breyta einhverju. Ef ég myndi ekki gera það, þá þyrfti ég að fara á lyf. Mig langaði til að ferðast í lífinu og mig langaði ekki að vera með meltingarkrampa á ferðalögum mínum, eða þurfa að liggja veik uppi á hótelherbergi. Þannig ég ákvað taka glútein, allar mjólkurvörur, sykur og egg út úr fæðunni og fór á hreint og plöntumiðað fæði. Eftir bara viku á því mataræði fann ég hvað mér leið miklu betur. Ég var orkumeiri, ég var farin að vakna á undan vekjaraklukkunni, magakramparnir og verkirnir í fótunum hurfu. Og mér leið bara virkilega vel, sem hvatti mig til að halda áfram.“

Gerði góða matinn hollari

Júlía viðurkennir þó að það hafi komið tímabil þarna í upphafi þar sem hún fór út af sporinu í nýja mataræðinu, fékk sér pítsu eða annað óhollt. En henni leið svo hræðilega eftir á að það hvatti hana bara enn frekar áfram á beinu brautinni. Þó löngunin í sætindi og óhollan mat hyrfi vissulega ekki á nokkrum dögum. „Ég var búin að finna hvað mér gat liðið vel og ég vildi ekki fórna því. Í kjölfarið fór ég svo að þróa uppskriftir þar sem maturinn missti ekki góða bragðið á kostnað hollustunnar. Ég tók matinn sem ég borðaði dagsdaglega og gerði hann hollari með því að nota önnur hráefni. Þetta má nefnilega ekki vera matur sem maður þarf að pína ofan í sig. Þá er maður ekki að njóta og líklegt að maður gefist upp. Mér fannst flókið að átta mig á því hvernig ég ætti að breyta lífsstílnum og var það einn hvatinn að skrifa bókina. Ég vildi einfalda öðrum leiðina að bættum lífstíl og sanna að hægt væri að borða virkilega bragðgóðan mat án sykurs eða óhollustu sem væri fljótlegur og einfaldur líka.“

Maðurinn líka á beinu brautinni

Eftir nokkur hliðarspor varð Júlía fljótt heltekin af nýja lífsstílnum og hún ákvað að mennta sig á þessu sviði, en fyrir hafði hún lært viðskipta- og hagfræði. Og þannig varð lífsstíllinn að starfsferli. „Eftir þessa uppgötvun hjá mér langaði mig að hjálpa öðrum og ég fann að aðrir upplifðu það sama og ég,“ segir Júlía og brosir. Hún er nú alveg laus við verkina, þreytuna og vanlíðanina sem hún glímdi við í mörg ár. Sumt lagaðist mjög fljótt, en það tók lengri tíma að ná skjaldkirtlinum í jafnvægi og að losna við einkennin vegna PMS.

Maðurinn hennar Júlíu hefur einnig tekið sig á í mataræðinu, en þá vegferð hóf hann ekki fyrr en hann hafði greinst með áunnið glútein- og mjólkuróþol.
„Maðurinn minn vill ekki vera svona öfgakenndur. Hann vildi ekki fara alveg út í vegan lífsstíl. Ég prófaði sjálf að fara alveg út í vegan lífsstíl en nú borða fisk einu sinni í viku. Ég get vissulega fengið öll þau næringarefni sem ég þarf með því að vera vegan, en ég er alin upp við fisk, finnst hann góður og sé ekki ástæðu til að neita mér um hann.“

Snýst um að venja sig

Júlía og maðurinn hennar borða alltaf hreina fæðu heima. Hann borðar hins vegar kjöt af og til og svo auðvitað fisk. „Þetta er maður sem lifði á kóki, mjólk, kókópöffsi og pítsum, en í dag drekkur hann hrísmjólk og finnst hún betri. Þetta snýst mikið um að venja sig á nýja fæðu og ekki byrja með því hugarfari að þetta sé vont. í dag finnst mér maturinn minn miklu betri en sá sem ég borðaði áður og að upplifa vellíðan af einhverju sem bragðast vel er dásamlegt.

Aðspurð segir Júlía það ekki hafa valdið neinum árekstrum í hjónabandinu að mataræðið sé ólíkt. „Þegar við förum út að borða þá kaupir hann sér stundum hamborgara á meðan ég kaupi mér eitthvað sem mér líður vel af og fullkomlega sátt við það. Hann segir oft að sér líði illa eftir matinn, en það er bara hans ákvörðun,“ segir Júlía og hlær. „Ég þvinga ekki mínum ákvörðunum upp á hann. En mataræðið hans er samt allt öðruvísi en það var. Hann er í hollustunni 80 prósent af tímanum. Sem sýnir bara að öll okkar þurfum að finna okkar takt í breyttum lífsstíl.“

Vildi ekki vinna fyrir aðra

Áður en Júlía hellti sér út í heilsufræðin vissi hún ekki alveg hvað hún vildi gera í lífinu. Hún var ekki ánægð í starfi og það var ekki bætandi á líkamlegu vanlíðanina sem hún var að upplifa. „Ég var í vinnu sem var ekki að uppfylla mínar þarfir. Ég var ekki ánægð og á ákveðnum tímapunkti ákvað ég að ég ætlaði mér ekki að vinna fyrir einhvern annan frá 9 til 5, við eitthvað sem ég hafði enga unun af. Eftir að ég tók þessa ákvörðun datt ég niður á skóla þar sem ég lærði heilsumarkþjálfun og næringar- og lífsstílsráðgjöf.“ Eftir að Júlía lauk náminu fór hún strax út í að stofna sitt eigið fyrirtæki sem hefur vaxið og dafnað síðan. Hún er dugleg að viða sér nýrri þekkingu og sækir reglulega námskeið í nýjustu straumum og stefnum í heilsumataræði. „Mér finnst mjög gaman að læra. Það veitir mér hamingju. Ég held að ég muni aldrei hætta að læra.“

Mynd/Hari

 

Kaka

Ekta súkkulaði brownies

 Þetta er einn af mínum uppáhalds eftirréttum, enda þykir mér fátt betra en dökkt súkkulaði. Kakan er einföld og þægileg að eiga í frysti þar sem hægt er að borða hana nærri strax og hún er tekin út.

 

Botn:

1 bolli möndlur (lagðar í bleyti í 2 klst eða yfir nótt)

¾ bolli mjúkar döðlur (fjarlægið steininn)

salt á hnífsoddi

 

Súkkulaðikrem:

1 og ½ (c.a ¾ bolli) stórt fullþroskað avókadó

½ bolli kakóduft

¼ bolli kókosolía í fljótandi formi

¼ bolli mjúkar döðlur, fjarlægið steininn (eða ¼ bolla hunang)

4 dropar stevía

vanilluduft á hnífsoddi eða 1 tsk vanilludropar

salt á hnífsoddi

 

 Malið möndlurnar vel í matvinnsluvél á lægstu stillingu. Bætið döðlum og salti út í og hrærið þar til blandan myndar deigkúlu sem helst vel saman (ef deigið er of þurrt má bæta við 1-2 tsk af kókosolíu í fljótandi formi). Þrýstið niður í 23 cm smelluform og geymið í kæli á meðan þið útbúið krem.

 

Setjið næst öll innihaldsefni fyrir súkkulaðikremið í matvinnsluvél eða blandara og blandið þar til kremið er orðið silkimjúkt. Smyrjið kreminu á botninn og geymið kökuna í kæli eða frysti í klst áður en hún er borin fram eða frystið yfir nótt. Njótið með kókosrjóma og berjum.

SHARE