Victoria Beckham réði hættulega grannar fyrirsætur í vinnu

Fólk varð heldur betur ósátt við val Victoria Beckham á fyrirsætum sínum á tískupöllunum. Fyrisætur hennar voru allar svo grannar að bein þeirra voru sérlega sýnileg og vakti það óhug margra þeirra sem á sýninguna horfðu.

Sjá einnig: Þegar Victoria Beckham var í snyrtiskólanum

Haft var orð á því að þær fyrirsætur sem klæddust fötum Victoria á pallinum höfðu verið þær sem aðrir vildu ekki ráða vegna þess hversu lífshættulega grannar þær litu út fyrir að vera. Mikil vitundarvakning hefur verið í tískubransanum að undanförnu og hafa fyrirsætur þurft að gangast æ meira undir læknisskoðun, til að kann hvort þær eru með fulla heilsu þrátt fyrir grannan líkamsburð. Einnig hefur verið meira um að fyrirsætur í stærri stærðum og aðrar sem  falla ekki í þetta klassíska fyrirsætuform, prýði pallana, sem er mjög jákvæð þróun.

Victoria sjálf vill ekki meina að það sé samansem merki á milli þess að fyrirsætur hennar séu grannar og að þær séu heilbrigðar. Sumir segja þó að hún sé ekki að vera alveg samkvæm sjálfri sér með valið á fyrirsætunum, því nýverið skrifaði hún bréf til sjálfrar síns þegar hún var ung og talaði hún þar um hversu hrædd hún hafði verið um að vera of feit og að vera með skaddaða sjálfsmynd.

Sjá einnig: Er Victoria Beckham einhent?

 

383566EA00000578-0-image-m-21_1473628762604

383568D400000578-0-image-a-26_1473628808761

383598CC00000578-0-image-a-35_1473628874637

3835542B00000578-0-image-a-29_1473628836823

3835BD4500000578-0-image-a-23_1473628790971

SHARE