Monthly Archives: May 2015

Það er líka fallegt að gefa pela

Það eru til fullt af myndum af konum að gefa brjóst en ekki jafn mikið af því þegar verið er að gefa barni pela. Ljósmyndarinn og móðirin Nikke Whitman gerði þessa myndaseríu sem ber heitið Bottle Feeding is Beautiful Too. Nikke er alls ekki að reyna að setja út á konur sem eru með börnin sín á brjósti en hún...

Eru Kendall Jenner og kappakstursmaðurinn Lewis Hamilton nýtt par?

Nýjustu fregnir herma að ofurfyrirsætan Kendall Jenner og kappakstursmaðurinn Lewis Hamilton séu að stinga saman nefjum. Þau hafa eytt miklum tíma saman undanfarið og sást til Kendall hvetja sinn mann áfram í Mónakókappakstrinum um helgina. Sjá einnig: Kendall Jenner: Lét henda Amber Rose út úr partíi á Coachella Á sunnudag tóku glöggir aðdáendur ofurfyrirsætunnar eftir því að hún bar gullkeðju um...

Þrjú börn köstuðust úr fljúgandi hoppukastala sem rak út á hraðbraut

Þrjú lítil börn voru færð í ofboði á slysadeild sl. mánudag eftir að hoppukastali hóf sig á loft með öll börnin innbyrðis. Hoppukastalinn endasentist í loftinu mörg hundruð metra, en börnin köstuðust úr leiktækinu fljótlega eftir að kastalinn hóf sig á loft og hlutu mismikil meiðsli. Mikil skelfing greip um sig meðan nærstaddra og má heyra skelfingaróp á myndbandinu...

„Hæ nennið þið að leika?“

Bolabíturinn Manfred ætlar sér bara að vingast við kýrnar! Þvílíkt krútt!! Sjá einnig: Þessi bolabítur elskar laufblásara https://www.youtube.com/watch?t=&v=OJsmH-buI_o&ps=docs

Kim Kardashian: Grét úr sér augun á meðan Kanye hreinsaði út úr skápunum hennar

Kim Kardashian var gestur í spjallþættinum Live! with Kelly & Michael í gærdag. Í þættinum sagði hún meðal annars frá því að Kanye West hefði hreinsað út úr fataskápum (já, þeir eru sennilega þó nokkrir) hennar stuttu eftir að þau byrjuðu saman. Kanye, sem er mikill áhugamaður um tísku og allt sem henni tengist, fékk fáeina stílista til liðs við sig...

Áreynsluþvagleki og grindarbotnsæfingar

Þvagleki við áreynslu er ósjálfráður og verður við líkamlega áreynslu, t.d. við hósta, hnerra, hlátur, hlaup, hopp og við að lyfta þungu. Þetta er fyrst og fremst vandamál kvenna og getur aukist í tengslum við meðgöngu og fæðingu, við tíðahvörf og almennt með aldri. Helstu ráð við áreynsluþvagleka eru þessi: Þjálfun grindarbotns Raförvun Hormónameðferð Lyfjameðferð Skurðaðgerð Þjálfun grindarbotnsvöðva er einföld, ókeypis og án aukaverkana ef rétt...

Kraftmikil bleikja með fersku sumarsalati

Hér er uppskrift að kraftmikilli bleikju sem við grillum og berum fram með fersku sumarsalati, æðislegt að smella henni á grillið núna þegar farið er hitna. Undirbúningstími: 10 mínútur Eldunartími: 5-7 mínútur Fyrir hversu marga: 4 Sjá einnig: Gómsæt steikt hrísgrjón með kjúkling Hráefni: Falleg bleikjuflök 250 til 300 gr. á mann. 2 msk af ólívuolíu, ég nota Filippo Berio 2 tsk Blue Dragon pressað engifer 1 tsk...

Ljúffengar Chow Mein heilhveitinúðlur

Það er margt mjög spennandi í Blue Dragon vörulínunni og hef ég lengi verið forvitinn hvernig á að nota öll þessi hráefni. Ég ákvað því að láta vaða á að prófa sem flest og langar að deila því með ykkur. Hér er uppskrift að Chow Mein, maður hljómar sem svo mikill fagmaður að segja það en þýðingin er einföld, ,,steiktar...

KLIKKUN: Fyrrum eiginmaður Sofiu Vergara krefst forræðis yfir frystum fósturvísum

Það er heitt í henni gömlu Hollywood þessa dagana. Nú hefur dómari veitt Nick Loeb, fyrrum eiginmanni þokkadísinnar Sofiu Vergara heimild til að krefjast forræði yfir tveimur frjóvguðum eggjum, sem þau Sofia létu frysta meðan þau voru enn gift - í þeirri von að þau myndu síðar meir fá staðgöngumóður til að ganga með fóstrin og fæða þeim hjónum...

Flottustu kjólarnir á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2015

Kvikmyndahátíðinni í Cannes lauk í gærkvöldi en hún stóð yfir í heila 11 daga. 11 dagar af stórkostlegum kjólum og dásamlegum glæsileika. Rúllum aðeins yfir það flottasta - það er alltaf svo skemmtilegt. Sjá einnig: Kendall Jenner: Stal senunni á kvikmyndahátíðinni í Cannes Lupita Nyong'o - alltaf stórglæsileg. Natalie Portman á opnunarhátíðinni. Julianne Moore. Charlize Theron gullfalleg í gulu. Og meira hér: Sjá einnig: Dásamlega fallegar...

Bleika Brettagengið: Súpersvalar hjólabrettastelpur rúlla upp rampinum

Áður en þú segir að stelpur ættu ekki að renna sér á hjólabrettum, skaltu líta til stelpnatríósins The PINK HELMET POSSE, sem samanstendur af þremur smástúlkum í Kaliforníu. Ekki bara eru þær vinkonurnar öflugar á hjólabrettinu - heldur eru þær alveg staðráðnar í að koma jafnöldrum sínum um allan heim upp á bragðið líka. Það er alls staðar hægt að...

Hvað í ósköpunum er þetta í skápnum hjá henni?

Hún er búin að komast að því að það er pokarotta flutt inn í skápinn hennar. Hún leyfir okkur hér að fylgjast með því þegar hún er að reyna að koma dýrinu úr skápnum en pokarottan hvæsir á hana og virðist vera mjög grimm. Svo kemur nokkuð óvænt í ljós. Kíktu á þetta! https://youtu.be/yD4_yGhzpp0  

Blue Dragon vika á Hún.is

Við á ritstjórn ákváðum að taka heila viku tileinkaða austurlenskri matargerð þar sem við erum öll mjög hrifin af þannig mat. Við tókum til þess ráðs á að fá Blue Dragon með okkur í lið og munum vera með tvær uppskriftir á dag með þessum dýrindis mat sem hægt er að gera úr vörunum frá þeim.   Við erum nú þegar...

Lærðu að fela þynnkuna

Jæja, löng helgi að baki og svona. Eurovision, útskriftir og hvers kyns partýhöld - það eru mögulega einhverjir ekki alveg upp á sitt besta í dag. Ekki örvænta, hérna eru nokkur skotheld ráð til þess að fela þynnkuna og líta út fyrir að vera endurnærður og eiturhress. Svona næstum því. Sjá einnig: Djammlífið með augum edrúmanneskjunnar https://youtu.be/szyF1RhCQLo?list=PLB063B59C698DB71D  

Hefur þú tekið afstöðu til líffæragjafar?

Í hverju er líffæragjöf fólgin? Í líffæragjöf felst að líffæri (hjarta, lungu, lifur, nýru, nýru, bris) eru fjarlægð úr látinni manneskju og síðan grædd í sjúklinga sem þarfnast þeirra. Líffæri er unnt að nota úr allt að sjötugum einstaklingum. Í nýrnasjúka eru stundum grædd nýru úr heilbrigðum aðstandendum. Hvers vegna ættir þú að taka afstöðu til líffæragjafar? Þá vita ættingjar hug þinn...

Gómsæt steikt hrísgrjón með kjúkling

Ég er ekki mikill kokkur og hef aldrei verið. Ég var lengi vel að reyna að láta fólk halda að ég kynni að elda, því mér fannst einhvern veginn að ég ÆTTI að kunna það þar sem ég er alin upp á hóteli og svona. En það er ekki þannig. Ég get alveg eldað en ég er enginn ástríðukokkur...

65 ára gömul kona eignast fjórbura

Hin þýska Annegret Raunigk, 65 ára eignaðist fjórbura eftir að hafa farið í tæknifrjógvun í Úkraínu. Þessi einstæða móðir á 13 börn fyrir og sjö barnabörn og fannst hún alveg geta átt 4 í viðbót en hún eignaðist 3 drengi og eina stúlku þann 23. maí, en hún hafði einungis gengið með fjórburana í 26 vikur. Samkvæmt HollywoodLife langaði Annegret að...

Syndsamlega ljúffengt satay-kjúklingasalat

Það er eitthvað við sataysósu. Einhverjir töfrar. Hnetusmjörskeimur. Milt chilibragð. Lyktin. Áferðin. Ég gæti makað henni á allt sem ég borða. Hellt henni út á morgunkorn þess vegna. Of langt gengið? Jæja, þetta salat er að minnsta kosti alveg stórkostlega ljúffengt. Algjört hnossgæti. Samkvæmi fyrir bragðlaukana. Sjá einnig: Gómsæt steikt hrísgrjón með kjúkling Syndsamlega ljúffengt satay-kjúklingasalat 3-4 kjúklingabringur 1 krukka sataysósa frá Blue Dragon 1 poki...

Aðeins of fyndið – Lítil stúlka fyllist stolti þegar heimilishundurinn léttir á sér!

Þetta er bara aðeins of fyndið - hér má sjá pínulitla, rosalega hreykna unga stúlku sem hefur eflaust alveg makalaust hrós fyrir að fara á koppinn sjálf. Sú hefur fengið hrós og hólyrði fyrir að skila stóru í koppinn, takk! Þvi er kannski ekki nema von að litla stúlkan verði svona ægilega stolt þegar heimilishundurinn veður út á tún...

Khloe Kardashian sýndi línurnar í Las Vegas

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum aðdáenda Kardashian-fjölskyldunnar að Khloe hefur verið ansi dugleg í ræktinni upp á síðkastið. Khloe var gestgjafi í samkvæmi á uppáhalds næturklúbbnum sínum í Las Vegas á föstudag og gjörsamlega gneistaði af kynþokka. Sjá einnig: Khloe Kardashian er komin í þrusuform Sjá einnig: Khloe Kardashian elskar að sýna tónaða kroppinn sinn

STÓRSIGUR: Írar lögleiða hjónabönd samkynhneigðra með þjóðaratkvæðagreiðslu

Írar gengu til þjóðaratkvæðagreiðslu um lögleiðingu hjónabanda samkynhneigðra nú um helgina og var tillagan samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Þannig verður Írland fyrsta land í heimi sem lögleiðir hjónabönd samkynhneigðra með þessum hætti, eða með beinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Fagnaðarlæti brutust víða út á götum Írlands þegar niðurstöðurnar lágu fyrir og hafa helstu miðlar heims sjónvarpað frá atburðinum, sem markar merk þáttaskil í...

Móðir handtekin á leikvelli: Ýtti látnum syni í leikrólu yfir nótt

Óhugnarleg aðkoma lögreglunnar í Maryland á bandarískum leikvelli nú á föstudag minnti einna helst á atriði úr hryllingsmynd. Það voru vegfarendur sem gerðu sér grein fyrir því að vera móður við leikrólurnar hafði varað grunsamlega lengi, en þar hafði hún staðið um langt skeið og ýtt látnu barni sínu fram og til baka í einni leikrólunni. Barnið var úrskurðað látið...

Hvernig léttast stjörnurnar á stuttum tíma?

Sumir leikarar þurfa að fara á fáránlega erfiða megrunarkúra til að létta sig fyrir hlutverk sín sem getur verið virkilega skaðlegt fyrir heilsuna. Hér eru 5 dæmi um slíka kúra: Sjá einnig: 6 einföld ráð til að léttast https://www.youtube.com/watch?v=qkFL2O-rbyc&ps=docs

Hefurðu íhugað að nota hettuna?

Núorðið nota fáar konur hettuna en hún hefur alveg fallið í skuggann af getnaðarvarnapillum og lykkjunni. Hettan er virk og skaðlaus getnaðarvörn og á að endast í mörg ár ef vel er farið með hana. Alltaf þarf þó að kaupa sæðisdrepandi krem sem þarf að nota með henni. Hverjum hentar hettan? Kona, sem aðeins sefur hjá stöku sinnum, þarf ekki að vera...

Situr fyrir í undirfötum mánuði eftir barnsburð

Undirfatafyrirsætan Sarah Stage var nú ekki með mjög stóra óléttukúlu þegar hún var kominn níu mánuði á leið svo það ætti ekki að koma manni á óvart að hún sé strax aftur byrjuð að vinna mánuði seinna. Sarah komst fyrst í fréttirnar þegar hún var komin 7 mánuði á leið. Þá leit Sarah frábærlega út og mátti enn sjá glitta...

Uppskriftir

Möndluköku muffins

Eru afar góðar og silkimjúkar, slá alltaf í gegn og koma frá Ragnheiði á Matarlyst

Pavlova með kókosbollu, Dumlesósu og ferskum ávöxtum

Við fjölskyldan erum öll frekar mikið hrifin af pavlovu og yfirleitt ef eitthvað er um að vera mæti ég með pavlovu og...

Ertu oft með útþaninn maga?

Það þekkja það margir að fá útþaninn maga reglulega. Oft má rekja það til lofts en svo eru stundum einhverjar aðrar ástæður...