Monthly Archives: July 2015

Sinaskeiðabólga

Sinaskeiðabólga er bólgusjúkdómur í sinaslíðri á innanverðum úlnlið sem veldur náladofa,verk eða brunatilfinningu í úlnlið og fingrum.   Orsök Sinar sem stjórna hreyfingu fingra liggja frá beinum í úlnlið og fram í fingur. Sinarnar liggja þétt saman ásamt aðalhandartauginni, í göngum eða slíðri innanvert á úlnlið. Þegar bólga hleypur í þetta slíður þrengir að tauginni og einkenni eins og náladofi í fingrum...

Dóttir Whitney Houston er látin

Bobbi Kristina Brown, dóttir söngkonunnar Whitney Houston og söngvarans Bobbi Brown, er látin. Bobby Kristina fannst meðvitundarlaus í baðkari í janúar síðastliðnum og hefur legið í dái síðan. Talið er að andlát hennar tengist misnotkun lyfja og áfengis, líkt og andlát móður hennar. Bobbi lést í faðmi fjölskyldunnar.

Jennifer Lopez nánast beraði frægan bossann á afmælinu sínu

Jennifer Lopez hélt upp á 46 ára afmæli sitt síðastliðið föstudagskvöld. Klæðnaður stórstjörnunnar hefur vakið heimsathygli en kjóllinn skyldi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið - ef svo má að orði komast. Sjá einnig: Jennifer Lopez (45) birtir sjóðheita bossamynd á Instagram Í toppformi: Lopez lifir mjög heilsusamlegu lífi. Víðfrægur bossinn á Lopez vakti mikla athygli þetta kvöld. Sjá einnig: Jennifer Lopez: Léttklædd & ögrandi á Billboard-tónlistarverðlaununum

,,Mig langar til þess að hrista þig!” – Jessie J er ósátt við einn uppáhalds keppanda sinn í The Voice

Söngkonan Jessie J lét uppáhalds keppanda sinn í The Voice heyra það. Hún sagði að hana langaði til að hrista hana eftir framkomu hennar í þáttunum. Jessie er þekkt fyrir ákveðna framkomu sína og sýndi hún Mahalete Teshome (18) hversu vonsvikin hún var áður en hún sendi hana heim. Mahalete, Ethan og Amber: Af þessum þremur keppendum stóð Amber eftir...

Teygjur: Mikilvægur hluti af góðri þjálfun

Til að njóta örugglega allra ávinningana sem þjálfunin hefur í för með sér og nýta tímann sem varið er til æfinganna sem best verður þú að hita upp. Að gefa sér nokkrar mínútur til upphitunar í upphafi æfingar mun skila sér margfalt til baka. Æfingarnar verða mun skemmtilegri vegna þess að þú ræður betur við þær, þér er síður...

Ert þú hrædd/ur við trúða?

Trúðar hafa í gegnum tíðina verið tákn gleði og kátinu. Þeir hafa verið notaðir sem skemmtiatriði frá byrjun 18.aldar í þeirri mynd sem við þekkjum þá í dag, en rekja má sögu slíkra skemmtikrafta allt aftur í fornaldir.  Ekki eru þó allir sem sem eru hrifnir af trúðum og meira segja líka svo illa við þá að þau hafa...

Kardashian fjölskyldan sökuð um að bjóða upp á kókaín í útskriftarveislu

Khloe Kardashian fór á Twitter í dag til þess að neita því að boðið hefði verið upp á kókaín í útskriftarveislu Kylie Jenner sem var haldin á dögunum. Sjá einnig: Kylie Jenner útskrifast með látum Hin 31 árs gamla Khloé Kardashian setti þetta á Twitter: Þið þarna búið til hvað sem er. Nei! Enginn var á kókaíni í útskriftarteiti á miðjum degi þar...

Pör lýsa hvort öðru fyrir teiknara

Þessi pör lýsa hvort öðru fyrir teiknara og hitta þau naglann misjafnlega vel á höfuðið. Sjá einnig: 17 pör sem þú gætir verið búin/n að gleyma https://www.youtube.com/watch?v=ZG_XTFczArg&ps=docs

Kylie Jenner hyggst sitja fyrir nakin

Þessi tíðindi ættu ekki að koma mörgum á óvart. Kim Kardashian, elsta systir Kylie, hefur jú ítrekað fækkað fötum fyrir framan myndavélar undanfarin ár. Og nú hyggst Jenner gera slíkt hið sama. Raunveruleikastjarnan unga verður 18 ára í ágúst næstkomandi og er myndatakan á áætlun um leið og hún hefur aldur til. Heimildarmaður Radar Online segir: Kylie einfaldlega elskar á...

Krúttið borðar pylsu snilldarlega

Hver hefur ekki séð ungt barn borða pylsu í bauði. Þegar lítill munnur er annars vegar, þá er ekkert auðvelt að koma bæði brauðinu og pylsunni upp í munninn í einu. Krúttlega dúllan. Sjá einnig: Krúttmoli þurrkar tárin og massar bólusetningu: „Ég er karlmaður!“ https://www.youtube.com/watch?t=10&v=orWzSnDx3EU&ps=docs

Kylie Jenner útskrifast með látum

Kylie Jenner útskrifaðist úr framhaldsskóla í vikunni sem leið. Að sjálfsögðu hélt Kris Jenner glæsilega veislu henni til heiðurs þar sem ekkert var til sparað - enda er það ekki í anda Kardashian-fjölskyldunnar. Ryan Seacrest var veislustjóri og var samkvæmið auðvitað stjörnum prýtt. Ekki er þó vitað hvort faðir Kylie, Caitlyn Jenner, hafi mætt á svæðið. Sjá einnig: Kendall & Kylie...

4 ára stúlka með hvítblæði ,,giftist” uppáhalds hjúkkunni sinni

 Abby litla er fjögurra ára gömul og býr í New York. Hún er með eitilfrumuhvítblæði og þarf að gangast undir sterka lyfjameðferð.  Þar sem hún hefur eytt miklum tíma á sjúkrahúsi, hefur hún myndað sérstök tengsl við uppáhalds hjúkrunarfræðinginn sinn og bað Abby litla því hann um að giftast sér. Hjúkrunarfræðingurinn Matt Hickling var við bón hennar og úr...

Kylie Jenner hittir pabba sinn í fyrsta skipti sem Caitlyn Jenner

Á sunnudaginn munu heimildaþættirnir I Am Cait hefja göngu sína en á föstudaginn fengu spenntir aðdáendur Kardashian fjölskyldunnar að sjá nýtt brot úr þáttunum. Sjá einnig: Kendall & Kylie Jenner: Sakna pabba síns Þættirnir sem munu fjalla um Caitlyn Jenner og líf hennar eftir að hún hóf að lifa lífi sínu sem kona. Nýjasta sýnishornið úr þáttunum sýnir þegar yngsta dóttir Caitlyn,...

Kate Moss og Jamie Hince eru að skilja

Ofurfyrirsætan Kate Moss (41) og rokkarinn Jamie Hince (46) standa í skilnaði um þessar mundir. Parið gekk í það heilaga árið 2011 eftir 4 ára samband. Jamie er að bíða eftir að Kate sjái sér fært að skrifa undir skilnaðarpappírana, en sögusagnir hafa verið á kreiki um að hann sé í tygjum við aðra konu. Svo virðist sem parið hafi...

Þessi mamma er með besta ,,pókerfeis” allra tíma

Dóttir hennar dansar og syngur af innlifun. Óþolandi mikilli innlifun. En mamman - hún haggast ekki. Bara keyrir áfram eins og hún sé alein í bílnum. Þetta er eiginlega of gott. Sjá einnig: Hún er að syngja þegar mamma hennar kemur https://www.youtube.com/watch?t=35&v=u85ffOhLu-s&ps=docs

Litur á þvagi er besti mælikvarðinn

Ef við drekkum ekki nægan vökva er hætta á að líkaminn fari í ástand sem nefnist ofþornun(e. dehydration), en það getur verið lífshættulegt ef ekkert er að gert. Ofþornun getur bæði komið til vegna ónógrar vatnsdrykkju og vegna mikils vökvataps. Ofþornun þýðir einfaldlega að líkaminn hefur ekki nægilegt magn af vatni, en vatn er nauðsynlegt til að viðhalda eðlilegri líkamsstarfsemi....

Geggjaðir Pågen kanilsnúðar með hvítu súkkulaði & karamellu

Lengi má gott bæta, er það ekki? Ég elska Pågen snúða. Ég elska hvítt súkkulaði. Og ég elska karamellu. Af hverju ekki að setja þetta allt í sömu sæng? Það er nú einu sinni laugardagur. Svo er líka sumar. Þá má borða góðgæti alla daga. Að minnsta kosti í mínum bókum. Verst að buxurnar mínar eru ekki sammála. En...

Hvernig á EKKI að henda kærustunni sinni fyrir borð

Tveir menn ætluðu að kasta ungri konu fyrir borð. Annar þeirra var kærasti hennar en ekki heppnaðist kastið nægilega vel og lenti hún því verulega harkalega með hálsinn á handriði. Kærasti konunnar hentist aftur á móti frá borði, eins og hann eflaust átti skilið fyrir að klúðra kastinu svona illilega. https://www.youtube.com/watch?v=vrCOUlagjP4&ps=docs Sjá einnig:Skemmtileg klúður utandyra – myndband

David Beckham fær sér húðflúr til heiðurs Victoriu

Hann er nú óttalega rómantískur hann Beckham. Og auðvitað sætur. Fjallmyndarlegur réttara sagt. David og Victoria fögnuðu nýlega 16 ára brúðkaupsafmæli sínu og nú hefur Beckham splæst í húðflúr að því tilefni - til heiðurs Victoriu. Sjá einnig: Brooklyn Beckham skammast sín fyrir David Beckham Beckham setti mynd af flúrinu inn á Instagram og við myndina ritaði hann: ,, 99 was a good...

Að geta ekki orðið ófrísk

Þrjár konur tala um að geta ekki orðið ófrískar. Þetta getur verið viðkvæmt umræðuefni fyrir margar konur og ástæðurnar geta verið margar, en þessar konur tala um sína hlið á málunum. Það getur verið gott að hafa aðgát í nærveru sálar. Sjá einnig: Um egglosvandamál https://www.youtube.com/watch?v=jV-p58vPq_I&ps=docs

Miley Cyrus dælir nektarmyndum inn á Instagram

Miley Cyrus á ansi skrautlegt Instagram eins og aðdáendur hennar væntanlega þekkja. Nýlega fór hún þó úr hverri einustu spjör og leyfði fylgjendum sínum að njóta. Hún er samt enginn vitleysingur og passaði að hylja það allra heilagasta - af því klám er jú stranglega bannað á þessum ágæta samfélagsmiðli. Hún notaði þó ekki föt til þess að hylja...

Scott Disick snýr aftur heim til barnanna sinna

Svo virðist sem raunveruleikastjarnan og partýljónið Scott Disick sé snúin aftur til Los Angeles þar sem fyrrverandi kærasta hans og börnin hans þrjú búa. Samband Kourtney og Scott endaði með látunum fyrr í þessum mánuði en þá var Scott í Frakklandi að njóta lífsins með annari stúlku. Scott virðist vera fyrst núna að koma aftur heim en hann hefur heldur...

Furðulegir Kardashian hlutir sem þú getur keypt á netinu

Eru þessi hlutir eitthvað sem þú hefðir áhuga á að eiga?  Kardashian æðið hefur náð yfir lönd og höf, svo ef þú ert mikill aðdáandi getur þú orðið þér úti um alls kyns hluti tengda þeim. Úrvalið er auðvitað stórkostlegt - hálsmen, kubbar, kerti og glæsileg sokkapör. Ein frægustu svipbrigði Kim Kardashian hafa verið sett á hálsmen. Bolur sneisafullur af þessum...

DIY: Búðu þér til ægilega smekklegt loftljós

Eflaust eiga einhverjir ljós með svona pappaskermi, hvort sem það prýðir loftin eða liggur inni í geymslu. Annars eru svona skermir fáanlegir í Ikea og örugglega víðar. Þetta ljós er að minnsta kosti ægifagurt og alveg þess virði að dunda sér dálítið yfir helgina. Sjá einnig: DIY – 14 frábærar leiðir til að föndra úr tómum klósettrúllum! https://www.youtube.com/watch?v=1-MAs8wDb4k&ps=docs

Elísabet Englandsdrottning lætur Katrínu Middleton heyra það

Samkvæmt breska slúðurtímaritinu OK! er Elísabet Englandsdrottning ekki parhrifin af skóbúnaði Katrínar hertogaynju og hefur fyrir vikið látið hana heyra það. Katrín sést oftar en ekki í skóm með fylltum hæl og slíkir skór eru drottningunni víst ekki að skapi. Sjá einnig: 208% söluaukning á gulum kjólum þökk sé Katrínu Middleton hertogaynju Heimildarmaður tímaritsins segir: Drottningin er ekki aðdáandi svona skóa. Henni er mjög...

Uppskriftir

Möndluköku muffins

Eru afar góðar og silkimjúkar, slá alltaf í gegn og koma frá Ragnheiði á Matarlyst

Pavlova með kókosbollu, Dumlesósu og ferskum ávöxtum

Við fjölskyldan erum öll frekar mikið hrifin af pavlovu og yfirleitt ef eitthvað er um að vera mæti ég með pavlovu og...

Ertu oft með útþaninn maga?

Það þekkja það margir að fá útþaninn maga reglulega. Oft má rekja það til lofts en svo eru stundum einhverjar aðrar ástæður...