3. desember – Gisting á hóteli fyrir tvo

Það er ofsalega góð gjöf að gefa einhverjum eitthvað sem er heilsueflandi, lífsbætandi og afslappandi. Það þekkjum við úr nútímasamfélagi að stundum er gott að kúpla sig út, ekki síst fyrir hátíðarnar. Það er þess vegna sem við ætlum að gefa einum heppnum lesanda nótt á hóteli, úti á landi, nánar tiltekið á Hótel Djúpavík á Ströndum.

Djúpavík er í 4 tíma akstursfjarlægð frá höfuðborginni en er hverrar mínútu virði. Seinustu 44 km ekurðu gamla góða malarveginn og þegar þú kemur út úr bílnum muntu anda að þér kyrrðinni og byrja að njóta. Þú heyrir í öldunum, fossinum, fuglunum og einstaka tófugagg. Ekkert betra!

Ef þig langar að upplifa þessa sælu, þarftu bara að merkja þann aðila/þá aðila sem þú vilt bjóða með hér fyrir neðan og líka við Hótel Djúpavík á Facebook. Dregin verður vinningshafi sem „tikkar í bæði þessi box“.

SHARE