„Aðgát skal höfð í nærveru sálar“ Botninum náð!

Botninum náð!

 

Ég og mín fjölskylda höfum átt gott líf og liðið vel í Grindavík. Síðasta haust tók líf okkar breytingum. Samnemendum dóttur okkar ofbauð svo framkoma kennara við hana að þeir stigu fram og tilkynntu athæfið. Hafi þeir miklar þakkir fyrir.

Viktor

Í kjölfarið var málið rannsakað af þriðja aðila. Að rannsókn lokinni liggur fyrir að umræddur kennari hafði lagt dóttur okkar einelti.

Fleiri börn stigu fram og niðurstaða í öðru máli var sú að kennarinn hefði sýnt nemanda ósæmilega hegðun. Þriðja málið er nú til rannsóknar.

Auk þess hafa hátt á annan tug fyrrum nemenda Grunnskólans í Grindavík undirritað harðorða yfirlýsingu þar sem þeir fullyrða að umræddur kennari hafi lagt þau í einelti meðan á skólagöngu þeirra stóð og afhent bæjaryfirvöldum yfirlýsinguna.

Allt þetta bendir til þess að eðlilegt og nauðsynlegt sé að ráðast í aðgerðir hratt og örugglega. Þeir sem stjórni taki á málum af festu, hafi þeir raunverulegan áhuga á velferð barna og virðingu skólans. Því miður er eins og hvort tveggja sé aukaatriði!

Stjórnsýslan í Grindavík virðist vera lömuð gagnvart þessu máli. Það skyldi þó aldrei vera að smábærinn með öll sín vensl og tengsl eigi sinn þátt í því að ekki er tekið á þessu máli af festu. 

Ég var viðstaddur skólaslit í Grunnskóla Grindavíkur í síðustu viku. Ég óska útskriftarnemendum og foreldrum þeirra innilega til hamingju með daginn. Það er stór dagur í lífi hvers barns að ljúka grunnskólanum. Flestir eiga sem betur fer góða skólagöngu. En því miður voru ekki allir viðstaddir skólaslitin og því miður voru ekki allir jafnánægðir sem mættu á þessi skólaslit eftir mjög erfitt skólaár. Því miður var skuggi yfir samkomunni. Fljótlega kom í ljós að það var ástæða fyrir skugganum og ekki búið að girða fyrir vandann.

Deildarstjóri á unglingastigi stjórnaði skólaslitunum. Deildarstjórinn er eiginkona gerandans í eineltismálinu. Deildarstjórinn hóf samkomuna á ljóði eftir Einar Benediktsson. Í ljóðinu kemur fram meðal annars setningin „Aðgát skal höfð í nærveru sálar“. Það er engin hefð fyrir ljóðalestri á þessari samkomu og var það mat mjög margra að þarna væri deildarstjórinn að misnota aðstöðu sína og ögra salnum.

Að lokinni hefðbundinni dagskrá kallar deildarstjóri nemendur úr einum tíunda bekknum á svið. Bekknum sem eiginmaður hennar, gerandinn í eineltismálinu kenndi, en gerandinn var búinn að vera meira og minna frá á seinasta skólaári vegna rannsókna og niðurstaðna þeirra. Meðal nemenda í þessum bekk eru tvíburar, drengur og stúlka. Einnig eru í salnum stúlka sem hafði verið lögð í einelti af umræddum kennara og að auki ein stúlka sem er með mál í rannsókn.

Drengnum sem fyrr er nefndur hafði eiginmaður deildarstjóra samkvæmt skýrslum sálfræðinga sýnt ámælisverða hegðun og drengurinn tók af þeim sökum ekki þátt í skólaslitum. Tvíburasystir hans var hins vegar viðstödd. Hún var engu að síður kölluð á svið án þess að hafa hugmynd um það hvað ætti að fara þar fram. Þá voru tveir úr hópi foreldra kölluð upp.

Síðan er gerandinn sem hafði verið frá störfum síðan í haust vegna eineltismála kallaður upp af eiginkonu sinni. Honum eru síðan færð blóm og gjöf fyrir vel unnin störf í vetur. Það var ömurlegt að vera í salnum og upplifa hrokann.

Mest fann ég þó til með stúlkunni sem var kölluð á svið til þess að þakka manninum sem hafði sýnt  bróður hennar ámælisverða hegðun. Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir barnið. Þetta er að mínu mati ömurlegur og alvarlegur dómgreindarskortur hjá deildarstjóranum. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Hvaða sálar?

Þetta er líka í hróplegu ósamræmi við skilaboð fundar sem við  nemendur og foreldrar barna úr níunda og tíunda bekk áttum með Vöndu Sigurgeirsdóttur nýlega í sama sal skólans um þessi eineltismál.

Á þeim fundum tilkynnti skólastjóri að um staðfest einelti og ámælisverða hegðun hefði verið um að ræða og gerandinn var nafngreindur.

Hver eru skilaboðin til barna og foreldra sem felast í að draga gerandann á svið við skólaslit og heiðra hann? Ef einhverjir foreldrar vildu gera það þá átti það að fara fram í heimahúsi, en aldrei á sviði skólans. Deildarstjóri unglingastigs, eiginkona gerandans notaði þarna tækifærið og stráði salti í sár fólks í salnum. Hún greip þarna til varna fyrir eiginmanninn á afar ósmekklegan hátt.

Þau sem áttu í raun skilið að vera á sviði skólans voru þau börn sem höfðu verið beitt ofbeldi í skólanum. Það hefði verið eðlilegt á þessari samkomu að þau hefðu verið beðin afsökunar á einelti eða ámælisverðri hegðun í sinn garð af starfsmanni skólans, með ósk um að sárin greru og að ofbeldið hefði ekki valdið þeim varanlegum skaða.

Þess í stað voru þau látin horfa upp á gerandann heiðraðan fyrir vel unnin störf. Þarna voru börnin og foreldrar þeirra enn og aftur niðurlægð. Hver ber ábyrgðina? Það krefst rannsóknar. Ef ekki verður tekið af festu á uppkomu af þessu tagi er stjórnsýslan í Grindavík annaðhvort meðvirk eða óvirk. Hvorugt er gott.

Að lokum þetta. Það er mikilvægt að færa ekki ábyrgð á stjórnleysinu í Grunnskólanum yfir á alla íbúa í Grindavík. Við skulum líka hafa hugfast að í Grunnskóla Grindavíkur er upp til hópa mjög gott starfsfólk. Það fólk líður nú líka eins og við hin fyrir aga- og stjórnleysi.

Þessi skrif eru ákall til æðri stjórnvalda, svo sem menntamálaráðuneytis og umboðsmanns alþingis.

Viktor Scheving Ingvarsson

Undirritaður er skipstjóri og íbúi í Grindavík.

SHARE