Áströlsk bomba með rjómaostakremi

Nammi namm. Þessi lítur ekkert smá vel út og kemur frá snillingunum á Matarlyst. Maður ætti kannski að prófa þessa um helgina.

Hráefni

470 g döðlur
3.5 dl vatn
2 tsk matarsódi
240 g smjör við stofuhita
10 msk sykur
4 egg
6 dl Hveiti
1 tsk salt
1 tsk lyftiduft

Aðferð
Hitið ofninn í 180 gráður og blástur. Setjið döðlur í pott ásamt vatni, látið suðuna kom upp á miðlungshita, slökkvið undir pottinum látið standa í 3 mín, bætið matarsóda út á það freyðir hressilega það er eðlilegt stappið döðlurnar t.d með gaffli ofaní pottinn.

Þeytið smjör og sykur þar til létt og ljóst, bætið einu eggi í einu út í hrærið vel á milli. Blandið þurrefnum saman setjið út í hrærivélaskálina vinnið saman um stund. Setjið döðlurnar ásamt vökvanum út í hrærið þar til komið er saman í u.þ.b 1 mín.Setjið í form/mót smyrjið formið að innan, eða muffinsform það er æði. Bakið við 180 gráður og blástur Muffins í ca 15 mín Form 20-25 mín fer eftir stærð forms.

Ath að hægt að bera fram tilbúna karamellusósu með kökunni. En hér uppskrift af afar góðri karamellusósu.

Karamellusósa

120 g smjör
115 g púðusykur
½ tsk vanilludropar
¼ bolli rjómi

Aðferð Setjið öll hráefni saman í pott sjóðið saman í ca 15 mín hrærið öðru hvoru í sósunni á meðan. Sósan á ekki að vera of þykk.Gott er að gera 2 × uppskrift til að eiga auka sósu til að bera fram með kökunni. Einnig er karamellusósan góð út á t.d á ís eða vöfflur. Kakan er afar góð ein og sér en dásamleg ný með þeyttum rjóma, rjómaostakremi og karmellusósu. Einnig er gott að bera fram ís með henni heitri og þá karamellusósu. Ekkert er að því að frysta tertuna og þær muffins sem ekki eru borðaðar samdægurs, er fljótar að þiðna, gott að eiga í frysti ef gesti ber að garði.

Rjómaostakrem

60 g smjör
4 dl flórsykur
5 msk rjómaostur
2 tsk vanilludropar

Aðferð
Allt sett saman í hrærivélaskálina hrærið saman um stund í u.þ.b 3-4 mín. Muffins á mynd setti fyrst, rjómaostakrem svo rjómaslettu og í lokin karamellusósu. Set einungis á þær kökur sem borða á hverju sinni. Kaka… Helli karamellusósunni yfir og ber fram með þeyttum rjóma eða ís

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here