Drykkur dagsins er ferskur og gómsætur eplasafi

Oft gefur maður sér ekki tíma til að borða ávexti yfir daginn en þumalputtareglan er sú að maður eigi að borða 5 ávexti á hverjum degi. Ég reyni mitt besta en yfirleitt næ ég varla 1 ávöxt á dag, því miður.

Ég var staðráðin í því að bæta úr þessari döpru neyslu minni á ávöxtum og hafði verið að hugsa um þetta í nokkra daga. Á þessum dögum rakst ég á þessa drykki í verslun. Þvílíka snilldin! Ég keypti mér nokkra svona drykki og ákvað að drekka allavega einn á dag í viku. Bara til að prófa.

Sjá einnig: Drykkur dagsins er með mangó og ástaraldinum

Ég fann það strax á fyrsta degi að ég var að gera góða hluti. Þvílík orka og vellíðan! Mig vantaði greinilega einhver vítamín í kroppinn á mér því á degi 3 vaknaði ég með einhverskonar tilhlökkun í drykkinn sem beið mín inni í ísskáp. Núna get ég ekki startað deginum án þess að fá mér einn svona ávaxta smoothie eða eitt glas af djúsnum.

Þessa vikuna ætlum við að hafa Innocent viku.

Einn drykkur á dag sem ég ætla að sýna ykkur og segja ykkur frá.

Drykkur dagsins í dag er

apple juice 330 ml

 

Þessi epladjús er ferskari en allir eplasafar sem þú hefur smakkað. Hann er gerður úr handtíndum eplum og bragðast því eins og epli. Það eru engin þykkni notuð í djúsinn og enginn sykur svo þetta er eins hollt og það getur orðið.

Við ætlum að gefa heppnum lesanda eina 6 stk pakkningu af þessum safa. Vertu með, með því að skrifa hér fyrir neðan hver er þinn uppáhaldsávöxtur?

SHARE