Harry prins og hans fyrrverandi Chelsy Davy eru að hugsa um að láta aftur reyna á samband þeirra eftir að hafa hisst í leyni í Afríku fyrir stuttu. Parið hætti saman eftir 7 ára samband stuttu eftir brúðkaup þeirra Williams og Kate árið 2011 en lofuðu hvort öðru að halda áfram að vera vinir. Síðan þá hefur Chelsy verið í alvarlegu sambandi við skartgripahönnuðinn Charles Goode, en það samband endaði í janúar á þessu ári, en Harry hefur átt í nokkrum mislukkukkulegum samböndum á þeim tíma.
Sjá einnig: Vilhjálmur bretaprins tekur lagið með Jon Bon Jovi og Taylor Swift
Talið er að Harry hafi í raun aldrei hætt að vera hrifinn af Chelsy og sannaðist það í ferð hans til Afríku á dögunum, þar sem fólki fannst áberandi að loginn væri ekki horfinn á milli þessa tveggja.
Chelsy er frá Suður Afríku og segja vinir hennar að henni hafi aldrei liðið eins og hún passaði inn í bresku konungsfjölskylduna og lofaði sjálfri sér því að hún myndi aldrei fara þangað aftur. Nú er þó möguleiki á því að það sé eitthvað vatn runnið til sjáfar í þeim efnum og hver veit nema þau taki upp þráðinn þar sem hann var skilinn eftir.
Sjá einnig: Eiga Karl Bretaprins og Díana heitin prinsessa dóttur?
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.