Er sárasótt hættuleg?

Sárasótt (syphilis) er kynsjúkdómur sem orsakast af bakteríu er nefnist Treponema pallidum.

Hvernig smitast sárasótt?

Bakterían sem veldur sárasótt smitar við óvarin kynmök. Sýktir einstaklingar eru aðallega smitandi þegar þeir eru með sár. Áður fyrr óttaðist fólk sárasótt mest allra kynsjúkdóma. Hér á landi hefur hún verið frekar sjaldgæfur sjúkdómur en þó greinast fáeinir á ári. Þá er oftast um gamalt smit að ræða og einstaklingarnir því ekki smitandi.

Hvernig get ég komið í veg fyrir smitun?

Smokkurinn verndar einungis þann hluta kynfæranna sem hann hylur en er þó eina vörnin.
Slímhúð og húð sem ekki er hulin getur því sýkst.

Sjá einnig: Holl ráð um kynsjúkdóma

Er sárasótt hættuleg?

Ef fullnægjandi meðferð er ekki gefin á fyrstu stigum sjúkdómsins getur bakterían valdið ýmsum sjúkdómum síðar á ævinni eins og hjarta-, heila- og taugasjúkdómum.

Hver eru einkenni sárasóttar?

Fyrstu einkenni sárasóttar eru sár á þeim stað sem bakterían komst í snertingu við, oftast á kynfærum, í endaþarmi eða munni. Nokkru síðar geta myndast útbrot í húðinni. Við langt gengna ómeðhöndlaða sárasótt koma einkenni frá miðtaugakerfi og hjarta- og æðakerfi.

Hvenær koma einkenni í ljós eftir smit?

Fyrstu einkenni sárasóttar koma í ljós 10 dögum til 10 vikum (oftast 3 vikum) eftir smit.

Hvernig er hægt að greina sárasótt?

Sárasótt er greind með blóðprufu sem er hægt að láta taka hjá öllum læknum.

Er hægt að fá meðferð við sárasótt?

Sýklalyf er gefið við sárasótt og læknar sjúkdóminn.

Lestu fleiri áhugaverðar greinar á doktor.is logo

SHARE