Helgarnámskeið fyrir karlmenn – Brandari

photo by criminalatt
photo by criminalatt

Við fengum þennan brandara sendan og stóðumst ekki mátið að setja hann hérna inn. Þetta er eingöngu til gamans gert og ber alls ekki að taka of alvarlega.

Karlanámskeið:

Athugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið.
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

Fyrri dagur:

HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT?
… Skref fyrir skref með glærusýningu.

KLÓSETTRÚLLUR, VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?
Hringborðsumræður.

MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)

DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður, nokkrir sérfræðingar (konur).

AÐ TAPA GETUNNI
Að missa fjarstýringuna til makans, stuðningshópar.

LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi, opin umræða.

Seinni dagur:

TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir.

HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNi AÐ GEFA HENNI BLÓM.
Power point kynning.

SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manni sem spurði til vegar.

ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir.

AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA.
Fyrirlestur og hlutverkaleikir.

HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR.
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni.

AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR.
Komdu með dagatalið þitt í tímann.

AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR.
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.

SHARE