Beyonce (34) brotnaði niður í afmælisveislu Kelly Rowland (35) og sagði frá því að hún væri að skilja við Jay Z.
„Beyonce var mikið að daðra og drekka í þessu afmæli og greinilegt að eitthvað var að angra hana,“ sagði heimildarmaður Life & Style magazine. „Hún tók af sér giftingarhringinn og lyfti honum upp og sagði fólki að þetta væri eitt af seinustu skiptunum sem þau myndu sjá þennan.“
Beyonce og Jay Z hafa ekki talað saman í svolítinn tíma nema það varði dóttur þeirra, Bluy Ivy Carter (4). Tina Knowles var spurð út í ummæli dóttur sinnar og sagði hún að Beyonce hafi ekki meint þetta og aðeins sagt þetta af því að hún hafi verið í glasi.