Hvaða starf hentar hverju stjörnumerki? – Hrútur

Það er alltaf gaman að lesa allskyns um stjörnuspeki. Maður hefur eitthvað svo lúmskt gaman að því, sérstaklega ef manni finnst það eiga við mann og þá sem maður þekkir.

Hrúturinn (21. mars – 19. apríl)

Hrúturinn er þekktur fyrir faglegt viðmót og ákveðni. Hann er oft með mjög djarfar hugmyndir og vinnur mjög vel í kappsömu umhverfi.

Starf: Hrúturinn nýtur sín vel í störfum eins og markaðssetningu, almannatengingu og vöruþróun.