You & I: John Legend með 1000 vasaklúta óð til allra kvenna

Þúsund vasaklúta söngvarinn John Legend, sem hvað þekktastur er fyrir sálarballöðuna All Of Me sem framkallað hefur ófá tár á vöngum tónlistarunnenda hefur nú gefið frá sér nýjan smell.

Hugljúf og seiðandi tónlistin er merkileg fyrir þá parta að í myndbandinu fer John stórum um einstaklingsbundna fegurð þá er allar konur búa yfir og virðist vera sem meistarinn hafi samið óð til allra kvenna sem felur í sér máttþrungin skilaboð; sjálfsást, fegurð og sjálfssátt gegnum ásjónur óteljandi kvenna sem líta spegilinn augum og reyna að hagræða þeim lýtum sem þær telja sig búa yfir. 

Í myndbandinu má sjá ungar stúlkur, mæður og verðandi mæður, íþróttakonur, konur af ólíkum kynþáttum; konur af öllum gerðum og stærðum og jafnvel konur sem hafa sigrast á brjóstakrabba – sem virðast ná hámarki með orðunum: „All of the stars, they don’t shine brighter than you are.”

 

 Þúsund vasaklúta smellur sem á erindi til allra kvenna: 

[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”Pi3bc9lS3rg”]

 

SHARE